
Djúpavogsskóli
Djúpavogsskóli er einsetinn heildstæður skóli með um 80 nemendur í grunnskóla, úr dreifbýli og þéttbýli Djúpavogs. Í grunnskólanum er lögð mikil áhersla á samkennslu, samvinnu og þverfaglega vinnu nemenda og kennara. Mikil áhersla er lögð á að nýta hið stórkostlega umhverfi sem skólinn er staðsettur í, bæði við leik og störf. Hugrekki, virðing og samvinna eru einkunnarorð skólans og fléttast þau gildi á margþættan hátt inn í skólastarfið. Tónskóli Djúpavogs er hluti af Djúpavogsskóla og hann er starfræktur í skólanum.

Skólaliði í 70-100% starf
Í Djúpavogsskóla vantar okkur metnaðarfullan og jákvæðan einstakling til að sjá m.a. um ræstingar, gangavörslu og gæslu á næsta skólaári.
Um tímabundið starf er að ræða og getur viðkomandi hafið störf sem fyrst.
Djúpavogsskóli er samrekinn grunn- og tónlistarskóli með um 70 nemendur. Skólinn vinnur í takt við hæglætishugmyndir Cittaslow og leggjur mikla áherslu á velferð, vellíðan og lausnarmiðaða nálgun.
Í Djúpavogsskóla er góður starfsandi og möguleiki á sveigjanlegum vinnutíma í samkomulagi við skólastjóra sem er næsti yfirmaður.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Fylgjast með og aðstoða nemendur í leik og starfi
- Almenn þrif á skólahúsnæði
- Almenn gæsla í frímínútum, hádegi og Frístund
- Stuðla að jákvæðu og hvetjandi skólaumhverfi fyrir alla nemendur.
- Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við starfsfólk skólans.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Íslenskukunnátta
- Frumkvæði og metnaður í starfi.
- Jákvætt og lausnarmiðað viðhorf til verkefna.
- Lipurð í samskiptum, sveigjanleiki og samstarfshæfni.
- Stundvísi og samviskusemi.
- Hreint sakavottorð
- 18 ára og eldri
Auglýsing birt23. mars 2026
Umsóknarfrestur6. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Varða 6, 765 Djúpivogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)


