Akureyri
Akureyri
Akureyri

Forstöðumaður Amtsbóka- og Héraðsskjalasafnsins á Akureyri

Vilt þú leiða eitt mikilvægasta menningar- og þekkingarsafn landsins inn í framtíðina?

Akureyrarbær leitar að öflugum og framsýnum forstöðumanni Amtsbóka- og Héraðsskjalasafnsins á Akureyri. Þetta er lykilstarf fyrir metnaðarfullan leiðtoga sem vill hafa raunveruleg áhrif á miðlun þekkingar, varðveislu menningararfs og þróun nútímalegrar þjónustu fyrir samfélagið.

Um er að ræða 100% starf sem er ótímabundið. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst, annars samkvæmt samkomulagi.

Amtsbókasafnið gegnir einstöku hlutverki í íslensku menningarlífi, meðal annars sem viðtakandi skylduskila og starfar í nánu samspili við Héraðsskjalasafnið á Akureyri.

Helstu verkefni og ábyrgð

Forstöðumaður ber ábyrgð á stefnumótun, rekstri og daglegri stjórnun Amtsbókasafnsins og Héraðsskjalasafnsins í samræmi við lög, reglugerðir og stefnu Akureyrarbæjar. Starfið er bæði faglegt og stjórnunarlegt og krefst góðrar yfirsýnar, frumkvæðis og hæfni í mannauðsmálum og rekstri.

Forstöðumaður heyrir undir sviðsstjóra þjónustu- og menningarsviðs og leiðir fjölbreyttan hóp starfsfólks í lifandi og síbreytilegu starfsumhverfi.

Helstu verkefni:

  • Mótun framtíðarsýnar og stefnu safnanna og eftirfylgni með henni
  • Rekstur og gerð starfs- og fjárhagsáætlana
  • Mannauðsstjórnun og fagleg forysta starfsfólks
  • Tryggja faglega, aðgengilega og nútímalega þjónustu við bæjarbúa og gesti
  • Varðveisla og miðlun menningararfs samkvæmt lögum og reglum
  • Frumkvæði að nýjungum og þróun í starfsemi safnanna
  • Samstarf við innlenda og erlenda aðila á sviði bóka- og skjalasafna

Við leitum að einstaklingi sem sameinar faglega þekkingu, stjórnunarhæfni og skýra framtíðarsýn.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi (BS/BA)
  • Háskólapróf á framhaldsstigi (MA/MS) eða sambærilegt sem nýtist í starfi
  • Haldbær starfsreynsla á sviði bóka- og/eða skjalasafna
  • Þekking á lögum og reglum sem varða starfsemi safna og stjórnsýslu
  • Reynsla og/eða hæfni í stjórnun, skipulagi og rekstri
  • Góð færni í ræðu og riti á íslensku og ensku
  • Góð tölvukunnátta
  • Leiðtogahæfni, frumkvæði og sjálfstæði
  • Teymishugsun, samstarfsvilji, lipurð og framúrskarandi hæfni í samskiptum
  • Skipulagshæfni, sveigjanleiki og víðsýni
  • Áhugi á menningu, þekkingarmiðlun og samfélagsþróun
  • Metnaður til að ná árangri í starfi
  • Gerð er krafa um vammleysi, svo sem að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.
Auglýsing birt8. apríl 2026
Umsóknarfrestur20. apríl 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Brekkugata 17, 600 Akureyri
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.ÁætlanagerðPathCreated with Sketch.FagmennskaPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.LeiðtogahæfniPathCreated with Sketch.MannauðsstjórnunPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.TeymisvinnaPathCreated with Sketch.Verkefnastjórnun
Starfsgreinar
Starfsmerkingar