

Fulltrúi í launadeild
Íslandshótel leitar að öflugum og metnaðarfullum launafulltrúa til liðs við launadeild félagsins á fjármálasviði.
Launadeildin gegnir mikilvægu hlutverki í daglegri starfsemi fyrirtækisins og starfar í nánu samstarfi við önnur svið og starfsstöðvar um allt land.
Við leitum að einstaklingi sem hefur áhuga á að starfa í faglegu og kraftmiklu umhverfi og vill vera hluti af samheldnu teymi sem leggur metnað í nákvæm vinnubrögð, góða þjónustu og öflugt samstarf.
Um starfið
Í starfinu gegnir þú lykilhlutverki í daglegri starfsemi deildarinnar. Hlutverkið felur í sér launavinnslu, afstemmingar og þjónustu við stjórnendur og starfsfólk innan fyrirtækisins. Starfið krefst sjálfstæðra vinnubragða, góðrar yfirsýnar og hæfni í mannlegum samskiptum.
Helstu verkefni
- Umsjón með launavinnslu og launaútreikningum
- Afstemmingar og eftirlit með launagögnum
- Skráning og eftirfylgni með launatengdum gögnum í launakerfum
- Þjónusta við stjórnendur og millistjórnendur vegna launa- og kjaramála
- Úrvinnsla og uppgjör launatengdra gjalda til opinberra aðila
- Þátttaka í þróun og umbótum á launaferlum og verkferlum
- Önnur verkefni samkvæmt nánara samkomulagi
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun sem nýtist í starfi
- Reynsla af launavinnslu er skilyrði
- Þekking á launakerfum skilyrði - Íslandshótel notar H3 launakerfi og Business Central
- Gott vald á íslensku og ensku er skilyrði (önnur tungumál kostur)
- Góð bókhaldsþekking og skilningur á fjárhagslegum gögnum
- Góð þekking á Excel og hæfni til að vinna með gögn og greiningar
- Góð almenn tölvu- og hugbúnaðarþekking og hæfni til að tileinka sér ný kerfi
- Framúrskarandi skipulagshæfni og nákvæmni í vinnubrögðum
- Frumkvæði, góð samskiptahæfni og þjónustulund
Gildin okkar eru:
Samvinna - Fagmennska - Hugrekki - Umhyggja
Frekari upplýsingar veitir Hrund Hauksdóttir, framkvæmdastjóri Fjármálasviðs ([email protected]).
Farið verður með allar fyrirspurnir og umsóknir sem trúnaðarmál.
Í gegnum tvö öflug vörumerki, bjóða Íslandshótel gæða hótel hringinn í kringum landið í nálægð við stórbrotið landslag og einstakar náttúruperlur. Innan Fosshótel og Hótel Reykjavík vörumerkja eru 17 hótel með rétt tæplega 2.000 herbergi. Fosshótel eru staðsett hringinn í kringum landið og Hótel Reykjavík með 4 stjörnu hótel í Reykjavík fyrir ferðamenn og ráðstefnugesti sem vilja njóta glæsilegar aðstöðu og framúrskarandi þjónustu.
Íslenska
Enska










