Samgöngustofa
Samgöngustofa
Samgöngustofa

Sérfræðingur í deild leyfisveitinga og ökunáms

Samgöngustofa leitar að öflugum einstaklingi í stöðu sérfræðings í leyfisveitingum í deild leyfisveitinga og ökunáms á umferðarsviði stofnunarinnar. Starfið tilheyrir þriggja manna leyfisveitinga- og undanþáguteymi. Í deildinni er unnið að þróun og uppbyggingu verkefna og stafvæðingu ferla. Við leitum að einstaklingi sem hefur áhuga á umferðaröryggismálum, stöðugum umbótum og er góður liðsmaður.

Starfshlutfall er 100%. Um tímabundið starf til 12 mánaða er að ræða.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Stjórnsýsla og utanumhald með leyfisveitingum fyrir bílaleigur, leigubílaakstur, farþega- og farmflutninga.
  • Útgáfa undanþágu vegna stærðar og þyngdar ökutækja.
  • Samskipti við hagsmunaaðila, aðstoð og upplýsingamiðlun.
  • Skráning í skjalakerfi og frágangur gagna.
  • Þátttaka í þróun og uppbyggingu verkefna, ferla og stafrænnar vegferðar.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun og reynsla sem nýtist í starfi.
  • Reynsla af sambærilegu starfi er kostur.
  • Rík þjónustulund og færni í mannlegum samskiptum er skilyrði.
  • Sjálfstæði, frumkvæði og metnaður í starfi.
  • Góð almenn tölvukunnátta er skilyrði.
  • Góð færni í íslensku og ensku í rituðu og mæltu máli.
Auglýsing birt30. apríl 2026
Umsóknarfrestur11. maí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Ármúli 2, 108 Reykjavík
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar