
Nói Síríus
Nói Síríus er rótgróið og öflugt fyrirtæki á matvælamarkaði. Hjá Nóa Síríus starfar samhentur hópur um 120 starfsmanna sem hefur það sameiginlega markmið að gleðja bragðlauka þjóðarinnar. Til þess er fjöldi sælgætistegunda framleiddur í glæsilegum húsakynnum fyrirtækisins að Hesthálsi 2-4.
Síríus súkkulaðið hefur verið ómissandi hluti af hátíðarstundum Íslendinga í tæp níutíu ár og Nói Síríus einsetur sér að vera í hópi leiðandi fyrirtækja á sínu sviði. Það gerir fyrirtækið með því að bjóða eftirsóknarverða gæðavöru og þjónustu sem standast ýtrustu kröfur viðskiptavina á alþjóðlegan mælikvarða. Vöruþróun skipar að auki stóran sess í starfsemi Nóa Síríusar og nýjungar fyrirtækisins líta reglulega dagsins ljós í hillum verslana, Íslendingum til mikillar ánægju.
Nói Síríus telur að bestum árangri sé náð í starfi þegar þekking og færni starfsfólks fá að njóta sín og einstaklingurinn finnur til ábyrgðar. Í slíku andrúmslofti leggjast allir á eitt og skapa traustan grunn að öflugum rekstri.
______
Nói Síríus is a well-established and powerful company in the Icelandic food industry. Nói Síríus has a tight-knit workforce of about 120 employees who share the goal of tickling the taste buds of Icelanders. Many different kinds of sweets are produced in the company’s impressive facilities at Hestháls 2-4.
Síríus chocolate has been an indispensable part of Icelandic festivities for close to ninety years, and Nói Síríus is committed to being a leader in its field. The company aims to achieve this goal this by providing quality products and services that meet customers' highest standards according to international criteria. Product development is also a major part of Nói Síríus’ activities, and new and innovative products are introduced regularly, to the great delight of Icelandic consumers.
At Nói Síríus, we believe that the best results will be achieved when our staff can freely apply their knowledge and skills, and when each individual has a sense of responsibility. In our work environment we have a common cause: to lay a solid foundation and build a robust, dynamic operation.
______
Nói Síríus to firma z silnie ugruntowaną pozycją w islandzkiej branży spożywczej. Zgrany zespół 120 pracowników łączy wspólny cel, jakim jest dostarczanie Islandczykom niezapomnianych wrażeń smakowych. Różne rodzaje słodyczy są produkowane w imponujących zakładach firmy przy ulicy Hestháls 2-4.
Czekolada Síríus już od prawie 90 lat towarzyszy Islandczykom w celebrowaniu ważnych chwil, a sama firma Nói Síríus przez cały czas stara się pozostać liderem w branży. Aby osiągnąć ten cel, firma zapewnia klientom wysokiej jakości produkty i usługi, które spełniają ich najwyższe oczekiwania i są zgodne z międzynarodowymi standardami. Do głównych obszarów działalności Nói Síríus należy również poszerzanie gamy produktów pozwalające regularnie wprowadzać na rynek nowe i innowacyjne wyroby, które zachwycają islandzkich konsumentów.
W Nói Síríus wierzymy, że najlepsze rezultaty przynosi zapewnienie personelowi swobody w wykorzystaniu posiadanej wiedzy i umiejętności, a także poczucie obowiązku u każdego pracownika. W naszym środowisku pracy łączy nas wspólny cel: zbudowanie solidnych podwalin pod intensywne i dynamiczne działanie.

Sölu- og þjónustufulltrúi
Vilt þú starfa með sætustu vörumerkjum landsins?
Nói Síríus leitar að jákvæðum, lausnamiðuðum og áreiðanlegum sölu- og þjónusturáðgjafa til starfa í þjónustuveri fyrirtækisins. Mikilvægt er að einstaklingurinn vinni skipulega og veiti vandaða þjónustu í samræmi við hátt þjónustustig fyrirtækisins. Um er að ræða tímabundið starf til eins árs með möguleika á fastráðningu.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Móttaka, úrvinnsla og skráning pantana og fyrirspurna
- Veita upplýsingar um vörur og þjónustu Nóa Síríus
- Ráðgjöf til viðskiptavina
- Aðstoð við reikningagerð
- Almenn þjónusta við innri og ytri viðskiptavini
- Stofnun vörunúmera og önnur tilheyrandi umsýsla
- Aðstoð við verkefni innan þjónustustýringar
- Almenn skrifstofuumsjón
- Þátttaka í umbótastarfi
- Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
- Stúdentspróf skilyrði
- Háskólagráða sem nýtist í starfi er kostur
- Reynsla af þjónustustörfum er æskileg
- Framúrskarandi samskiptahæfni og rík þjónustulund
- Geta til að aðlagast breytingum í síbreytilegu starfsumhverfi
- Geta til að vinna undir álagi og leysa mál á skilvirkan hátt
- Góð tölvukunnátta
- Þekking á DAX og Microsoft Office pakkanum
- Jákvæðni, skipulag og sjálfstæði í vinnubrögðum
Fríðindi í starfi
- Niðurgreiddur morgun- og hádegismatur
- Íþróttastyrkur
- Heilsufarsskoðun og velferðarþjónusta frá utanaðkomandi fagaðila
- Ýmsir viðburðir á vegum fyrirtækisins
- Virkt starfsmannafélag
- Golfklúbbur
- Píluklúbbur
Auglýsing birt24. apríl 2026
Umsóknarfrestur10. maí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Hestháls 2-4, 110 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)

Þjónustufulltrúi í móttöku / Service Representative
Alvotech hf

Sumarstarf í Vík
Arion banki

Leitum að innkaupafulltrúa - framtíðarstarf
Mekka Wines & Spirits hf

Sölusérfræðingur - Advise ehf.
Advise Business Monitor

Menningar- og þjónustusvið - Þjónustufulltrúi sumarstarf
Reykjanesbær

Sumarstarf (50%) – skrifstofa / ferðatengd þjónusta
Fish Partner

Orkubolti í þjónustuveri
Rarik ohf.

Þjónustufulltrúi hjá Krónunni
Krónan

Móttaka / skrifstofustarf
Pekron

Sölumaður á glerlausnum Samverks
Glerverksmiðjan Samverk

Þjónustufulltrúi í fyrirtækjaþjónustu
Sýn

Starf á Fjármálasviði
Torcargo