Pekron
Pekron

Móttaka / skrifstofustarf

Pekron óskar eftir öflugum liðsauka í móttöku og fjölbreytt skrifstofustarf.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Fjölbreytt ritaratengd verkefni á skrifstofu
  • Umsjón með daglegum umsýslustörfum á skrifstofu
  • Undirbúningur fundarherbergis og frágangur
  • Umsjón með kaffistofu og léttri daglegri hressingu á vinnustaðnum
  • Innkaup á skrifstofu og kaffistofu
  • Umsjón með sameiginlegum svæðum skrifstofunnar og að halda þeim snyrtilegum
  • Aðstoð við skjalavörslu og skjalastjórnun
  • Þjónusta við ferðabókanir og utanumhald ferða
  • Ýmis samskipti við þá aðila sem þjónusta fyrirtækið
  • Þjónusta og utanumhald vegna útleigu á skrifstofuhóteli
  • Ýmis önnur verkefni í samráði við starfsfólk og stjórnendur
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Jákvæðni og þjónustulund
  • Lausnamiðuð hugsun og ríkt frumkvæði
  • Skipulagshæfni Og nákvæm vinnubrögð
  • Vilji til að sinna fjölbreyttum og nýjum verkefnum
  • Rík færni til samskipta og samstarfs
  • Góð almenn tölvukunnátta s.s. Excel og Word og gott tæknilæsi
  • Góð íslensku- og enskukunnáttu
Fríðindi í starfi

Pekron er fjárfestingafélag með fjölbreytt fjárfestingasafn. Stefna Pekron er að þróa núverandi eignasafn með langtíma verðmætasköpun að leiðarljósi. Meðal félaga okkar er fasteignafélagið Laki sem er í örum vexti á íslenskum fasteignamarkaði. 

Hjá okkur færðu tækifæri til að vera hluti af kraftmiklu og metnaðarfullu teymi á spennandi vegferð.

Umsóknarfrestur er til og með 4. maí 2026

Umsókn skal fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjanda.

Sótt er um á www.mognum.is

Nánari upplýsingar veita:

Sigríður Ólafsdóttir I [email protected]

Telma Eiðsdóttir I [email protected]

Auglýsing birt23. apríl 2026
Umsóknarfrestur4. maí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Eyjarslóð 1, 101 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Almenn tölvukunnáttaPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Microsoft ExcelPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar