Advise Business Monitor
Advise Business Monitor
Advise Business Monitor

Sölusérfræðingur - Advise ehf.

Advise er íslenskt hugbúnaðarfyrirtæki í vexti. Við leitum að öflugum og sjálfstæðum sölusérfræðingi sem hefur gaman af mannlegum samskiptum, sér tækifæri og fylgir málum vel eftir.

Um starfið

Starfið felst í að hafa samband við nýja viðskiptavini, bóka fundi, kynna lausnina okkar og fylgja sölum áfram þar til samningar nást. Þú munt vinna með fyrirtækjum sem vilja fá betri yfirsýn yfir reksturinn sinn og einfaldari leið til að lesa úr sínum fjárhagsupplýsingum.

Advise hefur þróað hugbúnað sem hjálpar fyrirtækjum að setja fjárhagsupplýsingar fram á skýran og aðgengilegan hátt. Lausnin nýtist stjórnendum og öðrum sem þurfa að fylgjast með rekstri, bera saman tölur og taka upplýstar ákvarðanir. Í starfinu felst því að skilja þarfir viðskiptavina og sýna þeim hvernig lausnin getur nýst í þeirra daglega rekstri.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Finna nýja viðskiptavini
  • Hafa samband við fyrirtæki og kynna lausnina
  • Bóka og sitja fundi með mögulegum viðskiptavinum
  • Kynna hvernig lausnin getur nýst viðskiptavinum
  • Fylgja sölum vel eftir frá upphafi til enda
  • Byggja upp góð samskipti við viðskiptavini
  • Skrá samskipti og næstu skref á skipulagðan hátt
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla af B2B sölu
  • Sjálfstæði og góð skipulagshæfni
  • Góð samskiptahæfni og jákvætt viðmót
  • Geta til að hlusta, skilja þarfir og finna rétta lausn
  • Góð þekking á fjármálum fyrirtækja og skilningur á því hvaða upplýsingar og yfirsýn fyrirtæki þurfa til að geta tekið góðar ákvarðanir
  • Vilji til að ná árangri og fylgja málum eftir
  • Góð íslenska og enska
Auglýsing birt22. apríl 2026
Umsóknarfrestur6. maí 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Framúrskarandi
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Hlíðasmári 6, 201 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar