Samhentir
Samhentir

Söluráðgjafi véladeildar

Samhentir leita að metnaðarfullum aðila í sölu- og ráðgjafastarf í véladeild félagsins. Samhentir leita að metnaðarfullri sölumanneskju í sölu- og ráðgjafastarf í véladeild félagsins. Véladeild Samhentra sérhæfir sig í lausnum tengdum sjálfvirknivæðingu, pökkunarlínum og umbúðalausnum fyrir fyrirtæki í iðnaði og framleiðslu.

Starfið er fjölbreytt og tæknilegt og felur í sér náið samstarf við viðskiptavini, tæknisérfræðinga og birgja. Leitað er að einstaklingi með sterka söluhugsun, góða tæknilega yfirsýn og áhuga á að móta lausnir sem mæta raunverulegum þörfum viðskiptavina.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Sala og fagleg ráðgjöf tengd vélum, sjálfvirknilausnum og róbotum
  • Hönnun og teiknivinna á heildarlausnum fyrir íslenskan iðnað
  • Greining á þörfum viðskiptavina og mótun lausna í samstarfi við tækniaðila
  • Samskipti við birgja og framleiðendur, innlenda sem erlenda
  • Gerð tilboða, utanumhald með skráningu, framkvæmd kostnaðargreininga og eftirfylgni
  • Uppbygging og viðhald langtímasambanda við viðskiptavini
  • Önnur tilfallandi störf
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla af tæknilegri sölu og ráðgjöf
  • Góð hæfni í að greina þarfir og umbreyta þeim í framkvæmanlegar lausnir
  • Mjög góð tölvuþekking og notkun stafrænna lausna
  • Þekking á teikniforritum sem notuð eru við iðnaðar- og vélalausnir
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Góð samskiptahæfni og þjónustulund
  • Þekking eða reynsla af virkni, uppsetningu eða viðhaldi vélbúnaðar er kostur
Auglýsing birt22. apríl 2026
Umsóknarfrestur13. maí 2026
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Suðurhraun 4, 210 Garðabær
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar