
Samhentir
Samhentir Kassagerð ehf var stofnað árið 1996. Félagið hefur vaxið jafnt og þétt frá stofnun, frá því að vera lítið sprotafyrirtæki í stærsta umbúðaþjónustufyrirtæki á Íslandi. Lykillinn að framgangi fyrirtækisins liggur í góðum tengslum við viðskipavini og birgja félagsins, vönduðu og reynslumiklu starfsfólki ásamt áherslu á gæði og nýjungar.
Sérfræðingur í véladeild
Samhentir leita að drífandi og lausnamiðuðum sérfræðingi í véladeild félagsins. Véladeild Samhentra vinnur að framleiðslu, uppsetningu, samþættingu og þróun véla- og tæknilausna tengdum sjálfvirknivæðingu, pökkunarlínum og iðnaðarlausnum fyrir iðnað og framleiðslu.
Leitað er að einstaklingi með góða tæknilega yfirsýn og áhuga á fjölbreyttum verkefnum, sem nýtur þess að vinna að hagnýtum lausnum í nánu samstarfi við viðskiptavini, birgja og samstarfsfólk. Starfið býður upp á fjölbreytt verkefni og tækifæri til að þróast faglega með deildinni.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Tæknileg útfærsla, samsetning og uppsetning vélbúnaðarlausna
- Forritun, hönnun stýringa og uppsetning véla og pökkunarlína
- Greining og úrvinnsla tæknilegra áskorana hjá viðskiptavinum
- Samvinna við söluteymi við mótun tæknilausna og tilboða
- Samskipti við innlenda og erlenda birgja vegna tækni og búnaðar
- Þátttaka í þróun, stöðlun og umbótum lausna innan véladeildar
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun eða reynsla á sviði rafeindavirkjunar, rafmagnstæknifræði, rafiðna, vélfræði eða sambærilegu tæknisviði
- Reynsla af iðnaðarlausnum, vélum, sjálfvirknilausnum eða stýrikerfum mikill kostur
- Reynsla eða þekking á forritun, t.d. PLC-stýringum, Python eða sambærilegum lausnum
- Góð greiningarhæfni og lausnamiðuð hugsun
- Vilji og áhugi á að læra á ný kerfi, búnað og tækni
- Sjálfstæð, skipulögð og öguð vinnubrögð
- Góð samskiptahæfni og hæfni til að starfa í teymi
Auglýsing birt22. apríl 2026
Umsóknarfrestur13. maí 2026
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Suðurhraun 4, 210 Garðabær
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (2)
Sambærileg störf (12)

Sölumaður – Vélar og búnaður
Íslyft / Steinbock þjónustan ehf

Rafiðnaðarmaður á Suðurnesjum
HS Veitur hf

Rafvirki / Rafeindavirki til starfa í Tæknideild
Nortek

Skoðunarmaður á rafmagnssviði
BSI á Íslandi ehf.

Áreiðanleikafræðingur
Norðurál

Sérfræðingur rafbúnaðar
Norðurál

Rafvirki
Blikkás ehf

Viðhald eftirlits- og gæðakerfa
Isavia / Keflavíkurflugvöllur

Leiðtogi á fjármálasviði Deloitte
Deloitte

Rafbúnaður – Viðskiptastjóri / Ráðgjafi - Framtíðarstarf
Fálkinn Ísmar

Orkubú Vestfjarða - Ísafjörður - Vélfræðingur
Orkubú Vestfjarða ohf

Sérfræðingur í hönnun rafkerfa
EFLA hf