EFLA hf
EFLA hf
EFLA hf

Sérfræðingur í hönnun rafkerfa

EFLA leitar að metnaðarfullum rafmagnsverkfræðingi eða tæknifræðingi til starfa við fjölbreytt og krefjandi verkefni á sviði raforku, iðnaðar og innviða. Um er að ræða spennandi tækifæri fyrir einstakling sem vill vinna að stórum og samfélagslega mikilvægum verkefnum í öflugu faglegu umhverfi.

Starfið snýr að hönnun á 400V-11kV rafkerfum og annarri rafmagnstengdri ráðgjöf í iðnaði. Meðal verkefna er hönnun landtenginga fyrir skip og fóðurpramma, hönnun rafdreifingar og lýsingar í götum, jarðgöngum og brúargerð. Hönnun rafdreifingar fyrir gagnaver, fiskeldi, sjávarútveg og annan iðnað.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Hönnun rafkerfa í iðnaðarumhverfi
  • Val á búnaði
  • Gerð kostnaðaráætlana
  • Gerð útboðsganga
  • Samskipti við viðskiptavini og birgja
  • Þátttaka í teymisvinnu þvert á fagsvið EFLU
  • Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Rafmagnsverkfræðingur MSc eða rafmagnstæknifræðingur BSc
  • Reynsla af hönnun rafkerfa er kostur
  • Reynsla af notkun AutoCad og Revit er kostur
  • Reynsla af notkun á ETAP er kostur
  • Framúrskarandi hæfni í samskiptum og samvinnu
  • Metnaður til starfsþróunar
  • Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
  • Góð færni í íslensku og ensku í ræðu og riti
Fríðindi í starfi
  • Góður og hollur matur í hádeginu
  • Vellíðunarstyrkur
  • Samgöngustyrkur
  • Hreyfistyrkur
  • Fæðingarstyrkur
  • Gleraugnastyrkur
  • Símastyrkur
  • Símaáskrift og heimatenging
Auglýsing birt20. apríl 2026
Umsóknarfrestur26. apríl 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Lyngháls 4, 110 Reykjavík
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar