COWI
COWI
COWI

Project controller

Viltu gegna lykilhlutverki í að styðja við verkefnastjórnendur, móta fjárhagslega afkomu verkefna og hafa áhrif á starfsemi COWI þvert á landamæri? Langar þig að þróast í starfi innan fjölbreytts hóps sérfræðinga hérlendis og erlendis? Þá hvetjum við þig til að kynna þér starfið betur hér að neðan.

Helstu verkefni og ábyrgð

Fjármáladeild COWI á Íslandi leitar að viðbót í teymið en í deildinni starfa 8 einstaklingar sem vinna að umfangsmiklum og fjölbreyttum verkefnum tengdum rekstri COWI. Í þessu hlutverki munt þú m.a. styðja verkefnastjóra við greiningu á rekstrarstöðu verkefna og tryggja skýra og sterka tengingu milli fjármála og verkefnastjórnunar í samstarfi við sérfræðinga hér heima og erlendis.

Í starfinu verða tækifæri til að þróa og þroska hæfni í fjármálum tengdum rekstri verkefna, ráðgjöf og stefnumótandi greiningu. Starfið býður upp á víðtæk samskipti við sérfræðinga um allan heim, þátttöku í stórum og fjölbreyttum verkefnum og frábæra starfsþróunarmöguleika í alþjóðlegu og síbreytilegu umhverfi.

Lykilþættir starfsins eru:

  • Tryggja rétta og tímanlega afgreiðslu reikninga. Fylgjast með tekjum, kostnaði og sjóðstreymi verkefna.
  • Bera kennsl á áhættu, tækifæri og frávik, ásamt því að veita ráðgjöf.
  • Styðja verkefnastjóra í allri fjárhagslegri ákvarðanatöku verkefna og vera aðaltengiliður milli verkefnastjóra og fjármáladeildar.
  • Útbúa greiningar, skýrslur og kynningarefni fyrir stjórnendur og aðra hagsmunaaðila.
  • Tryggja gagnsæi og rétt gögn í kerfum þannig hægt sé að tryggja samræmi við innri reglur og lögbundnar kröfur.
  • Taka þátt í öðrum verkefnum á fjármálasviði.

 

Menntunar- og hæfniskröfur

Til að ná árangri í þessari stöðu teljum við að þú ættir að vera þjónustusinnaður, sveigjanlegur einstaklingur sem er frábær í að byggja upp sambönd, gaum að smáatriðum og alltaf opinn fyrir nýjum áskorunum.  

Að auki erum við að leitast eftir: 

  • Háskólagráðu í rekstrar- eða fjármálatengdum greinum.
  • Reynsla af fjármálum og rekstrargreiningum er æskileg.
  • Sterkri hæfni í að vinna með fjárhagsleg gögn, greina frammistöðu og miðla niðurstöðum á skýran hátt.
  • Framúrskarandi greiningarhæfni og viðskiptavit, ásamt getu til að greina áhættu og tækifæri.
  • Góðri samskiptahæfni og getu til að byggja upp traust og góð samskipti við stjórnendur og teymi, bæði hér heima og erlendis.
  • Sjálfstæðum og skipulögðum vinnubrögðum 
  • Góðri kunnáttu á íslensku og ensku, bæði í töluðu og rituðu máli. 

 

Fríðindi í starfi

Við bjóðum líka uppá 

  • Sveigjanlegan vinnutíma og fjarvinnumöguleika í bland við vinnu á starfsstöð 

  • Öflugt mötuneyti með morgunmat, hádegismat og síðdegishressingu

  • Samgöngu- og líkamsræktarstyrkir

  • Starfsmannafélag með fjölbreyttum deildum og viðburðum 

  • Viðbótargreiðslur í fæðingarorlofi 

  • Starfsþróunarmöguleikar innan COWI, starfsþróunaráætlanir og rafræn þjálfun hjá COWI Academy

  • Árlegt heilsufarsmat  

Auglýsing birt16. apríl 2026
Umsóknarfrestur5. maí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Urðarhvarf 6, 203 Kópavogur
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.ÁhættugreiningPathCreated with Sketch.GreiningarfærniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.Verkefnastjórnun
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar