
Sérfræðingur í áætlanagerð og kostnaðargreiningum
Framkvæmdasýslan – Ríkiseignir (FSRE) leitar að metnaðarfullum og talnaglöggum einstaklingi til að ganga til liðs við teymi sérfræðinga í deild áætlana. Hlutverk deildarinnar er að gera kostnaðaráætlanir og útkomuspár í framkvæmdaverkefnum sem eru nýttar í ákvarðanatöku og til að hafa skilvirkt eftirlit með framvindu verkefna með tilliti til tíma og kostnaðar.
FSRE rekur eitt af stærstu fasteignafélögum landsins auk þess að bera ábyrgð á og stýra uppbyggingu innviða og aðstöðu fyrir ríkisaðila. Fjárhagslegt umfang nýframkvæmda og viðhalds í umsjón FSRE nemur um 30 milljörðum á ári.
Um er að ræða spennandi starf í lifandi umhverfi sem krefst samvinnu við innri og ytri aðila og býður upp á tækifæri til að hafa áhrif á þróun verklags ásamt því að samræma vinnubrögð til að tryggja gæði í undirbúningi og framvindu framkvæmda hjá hinu opinbera.
- Gerð kostnaðaráætlana og útkomuspáa fyrir framkvæmda- og viðhaldsverkefni
- Þróun á verklagi við gerð kostnaðaráætlana og útkomuspáa
- Greina gæði áætlana, áhættu og vikmörk
- Framsetning gagna vegna ákvarðanatöku um framgang verkefna
- Uppfærsla, þróun og sjálfvirknivæðing kostnaðarbanka FSRE
- Rýni áætlana og greininga á sviði kostnaðar, tíma og áhættu, frá hönnuðum og verktökum
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi
- Reynsla af áætlunargerð, spálíkönum, greiningarvinnu og framsetningu gagna
- Þekking á hönnun og/eða verklegum framkvæmdum æskileg
- Þekking á sjálfvirknivæðingu og nýtingu gervigreindar er kostur
- Þekking af hagnýtingu gagna og framsetningu með PowerBI eða sambærilegu skýrslugerðartóli
- Góð samskipta- og samstarfshæfni
- Þekking á tímaáætlunum og framvindugreiningum er kostur
- Frumkvæði, metnaður, skipulagsfærni og öguð vinnubrögð
- Góð íslensku- og enskukunnátta og hæfni í tjáningu í ræðu og riti
Íslenska










