Nýr Landspítali ohf.
Nýr Landspítali ohf.
Nýr Landspítali ohf.

Nýr Landspítali - Verkefnastjóri á framkvæmdasviði

Verkefnastjóri í verklegum framkvæmdum

Nýr Landspítali ohf. leitar að öflugum, skipulögðum og metnaðarfullum einstaklingum til að stýra og halda utan um spennandi framkvæmdaverkefni. Við erum að stækka teymið okkar og leitum að bæði nýútskrifuðum/reynsluminni aðilum sem eru tilbúnir að læra og vaxa í starfi, sem og reynsluboltum sem geta tekið strax við stjórn stærri og flóknari verkefna.

Ert þú verkfræðingur, tæknifræðingur eða byggingarfræðingur sem brennur fyrir verkefnastjórnun, uppbyggingu og teymisvinnu? Þá viljum við heyra í þér!

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Dagleg verkefnastjórnun: Stýring verklegra framkvæmda með áherslu á tíma-, kostnaðar- og gæðastjórnun.
  • Áætlanagerð: Gerð, eftirfylgni og uppfærsla verk- og kostnaðaráætlana.
  • Samskipti og teymisvinna: Dagleg samskipti og samhæfing við verktaka, hönnuði, verkeftirlit og ráðgjafa.
  • Útboð og samningar: Þátttaka í gerð útboðsgagna, rýni tilboða og utanumhald samninga.
  • Eftirlit og gæðamál: Vettvangsferðir, eftirlit með framvindu á verkstað og úrvinnsla frávika með verktaka og verkeftirliti.

Handleiðsla og leiðsögn:  Faglegur stuðningur, þjálfun og leiðbeiningar við yngri eða reynsluminni starfsmenn.

Menntunar- og hæfniskröfur

Við leitum að aðilum sem hafa sterkan tæknilegan bakgrunn og hæfileika til að leiða verkefni í mark.

  • Menntun: Háskólagráða sem verkfræðingur, tæknifræðingur eða byggingarfræðingur.
  • Fyrir reynslumikla umsækjendur: Víðtæk og haldbær reynsla af verkefnastjórnun eða stýringu verklegra framkvæmda er áskilin.
  • Fyrir reynsluminni umsækjendur: Sterkur fræðilegur grunnur, mikill áhugi á verkefnastjórnun og ríkur vilji til að tileinka sér nýja þekkingu.

Tölvukunnátta: Góð færni í Microsoft 365 forritum t.d. word, excel og powerpoint. Þekking á upplýsingalíkönum (BIM) eða teikniforritum er kostur.

Fríðindi í starfi

Við bjóðum

  • Tækifæri til að koma að fjölbreyttum og samfélagslega mikilvægum verkefnum.
  • Sveigjanleika sem miðar að góðu jafnvægi milli vinnu og einkalífs.
  • Mjög góða möguleika á faglegri og persónulegri starfsþróun innan fyrirtækisins.
  • Öflugt og líflegt starfsumhverfi þar sem rík áhersla er lögð á samvinnu og þekkingarmiðlun.
Nánari upplýsingar:

Nánari upplýsingar um starfið veitir Ólafur M. Birgisson sviðsstjóri framkvæmdasviðs í síma 896-7330 eða í tölvupósti á [email protected] . Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál.

Nýr Landspítali ohf. (NLSH):

NLSH tekur m.a. þátt í verkefnastjórn á þróunar-, hönnunar- og framkvæmdaverkefnum vegna húsnæðis Landspítala Háskólasjúkrahúss sem og uppbyggingu nýbygginga, gatnagerðar og lóðar við nýjan Landspítala við Hringbraut. Þá er félagið að sinna uppbyggingu á nýrri Grensásdeild Landspítala, Húsi Heilbrigðisvísindasviðs Háskóla Íslands sem og Sjúkrahússins á Akureyri. Félagið, sem er að fullu í eigu ríkisins, er í samstarfi við fjölmarga hagsmunaaðila m.a. stjórnvöld, Landspítalann, Sjúkrahúsið á Akureyri, Háskóla Íslands, Fasteignafélag HÍ, FSRE, sjúklingasamtök og sveitarfélög. Fjöldi ráðgjafa starfar fyrir og með NLSH. Nánari upplýsingar um NLSH má finna á www.nlsh.is?

Auglýsing birt14. apríl 2026
Umsóknarfrestur27. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Arkitekt (húsameistari)PathCreated with Sketch.ByggingafræðingurPathCreated with Sketch.TæknifræðingurPathCreated with Sketch.Verkfræðingur
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar