Veðurstofa Íslands
Veðurstofa Íslands
Veðurstofa Íslands

Snjóflóðasérfræðingur

Veðurstofa Íslands óskar eftir að ráða snjóflóðasérfræðing tímabundið í fullt starf hjá deild snjóflóða og skriðufalla sem er á Þjónustu- og rannsóknasviði. Á deildinni starfa rúmlega 20 sérfræðingar við ýmis störf sem tengjast ofanflóðum, bæði við vöktun, rannsóknir og hættumat. Starfsfólk deildarinnar starfar á fjórum starfsstöðvum: Reykjavík, Ísafirði, Akureyri og í Neskaupstað og einnig tilheyra deildinni snjóathugunarmenn sem eru staðsettir víða um land. Viðkomandi hefur val um starfsstað úr ofangreindum fjórum starfsstöðvum.

Veðurstofa Íslands er opinber stofnun sem heyrir undir Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið. Á Veðurstofunni starfa um 160 manns með fjölbreytta menntun og starfsreynslu sem spannar mörg fræðasvið vísinda og sérfræðiþekkingar. Auk þess starfa um 50 manns við athugana-og eftirlitsstörf víðsvegar um landið. Nánari upplýsingar um stofnunina má finna á heimasíðu hennar www.vedur.is

Starfið felst í snjóflóðavöktun og tengdum þróunar- og rannsóknarverkefnum. Viðkomandi verður hluti af öflugu og samstilltu teymi sérfræðinga ofanflóðavöktunar Veðurstofunnar, sem er í nánu samstarfi meðal annars við snjóathugunarmenn og veðurfræðinga á vakt.

Helstu verkefni og ábyrgð

Sérfræðivinna við vöktun snjóalaga og veðurs á snjóflóðasvæðum. Öflun upplýsinga frá snjóathugunarmönnum og veðurfræðingum á vakt. Gerð snjóflóðaspáa og ráðgjöf er varðar snjóflóðavá. Vinna við þróunar- og rannsóknarverkefni sem tengjast snjóflóðavöktun.

Starfinu fylgir vaktavinna á álagstímum og þá sérstaklega yfir vetrartímann.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólapróf sem nýtist í starfi

  • Framhaldsmenntun sem nýtist í starfi er kostur

  • Reynsla af fjallaferðum nauðsynleg og þá sérstaklega að vetrarlagi

  • Þekking og geta til að vinna við GIS kerfi, almenna forritun, líkanareikninga eða R-forritun er kostur

  • Reynsla af greiningu flókinna gagna og nýtingu gervigreindar er kostur

  • Æskilegt er að viðkomandi hafi lokið snjóflóðanámskeiðum s.s. Level 1 hjá Kanadísku snjóflóðasamstökunum og/eða fagnámskeiði Landsbjargar

  • Góð þekking á landafræði Íslands

  • Góð færni í íslensku og ensku og þá sérstaklega í rituðu máli

  • Færni í mannlegum samskiptum

  • Geta til að vinna og taka ákvarðanir undir álagi og óvissum kringumstæðum

  • Góð greiningarfærni

  • Skipulagshæfni og nákvæm vinnubrögð

Í gildum Veðurstofunnar er lögð áhersla á að vera áreiðanleg, samvinnufús og hugvitsöm. Ráðningar taka mið af þessum gildum.

Auglýsing birt7. apríl 2026
Umsóknarfrestur24. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar