
Verkefnastjóri
Brennur þú fyrir verkefnastjórnun og góðu skipulagi og hefur menntun eða þekkingu á sviði mannvirkjagerðar, byggingaframkvæmda, áætlanagerðar og kostnaðareftirlits?
Landhelgisgæsla Íslands leitar að öflugum, útsjónarsömum og skipulögðum einstaklingi til að taka þátt í verkefnastjórnun og samræmingu á uppbyggingu framkvæmda, mannvirkja og innviða á öryggissvæðunum hér á landi (sjá auglýsingu nr. 964/2021 um landfræðileg mörk öryggis- og varnarsvæða og auglýsingu nr. 500/2025 um mannvirki og fjarskiptakerfi Atlantshafsbandalagsins og íslenska ríkisins sem nýtt eru í öryggis- og varnartengd verkefni). Um tímabundið starf er að ræða með möguleika á fastráðningu.
Helstu verkefni:
- Verkefnastjórnun í samvinnu við aðra stjórnendur og sérfræðinga hér á landi og erlendis
- Undirbúningur og innleiðing verkefna í samvinnu við hagsmunaaðila og þátttaka í tengdum vinnuhópum hér á landi og erlendis
- Undirbúningur og framkvæmd í samvinnu við viðeigandi hagsmunaaðila
- Áætlanagerð, framkvæmda- og kostnaðareftirlit
- Eftirfylgni með heimildum, framkvæmd, umsýslu og uppgjörum verkefna
- Upplýsingamiðlun til hagsmunaaðila
- Tryggja að undirbúningur, framkvæmd og skjölun gagna uppfylli kröfur Atlantshafsbandalagsins
- Ráðgjöf við stjórnendur, sérfræðinga og verktaka
- Gerð og viðhald leiðbeininga og áætlana ásamt skýrslugerð
- Gagnaöflun og upplýsingamiðlun
- Viðhalda yfirsýn yfir framvindu uppbyggingar öryggis- og varnarinnviða á Íslandi
- Samskipti við hagsmunaaðila hérlendis og erlendis vegna verkefna Mannvirkjasjóðs Atlantshafsbandalagsins á Íslandi
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi, til dæmis verk- eða tæknifræði og/eða á sviði bygginga, fjármála eða rekstrarverkfræði
- Þekking á verkefnastjórnun og áætlanagerð vegna byggingaframkvæmda
- Mjög góð íslensku-, ensku- og tölvukunnátta
- Áhugi á varnarmálum
- Afburðagóðir samstarfs- og samskiptahæfileikar
- Sjálfstæði og frumkvæði ásamt hæfni til að vinna undir álagi
- Góð greiningarhæfni og lausnarmiðuð hugsun
- Snyrtimennska, góð umgengni og skipulag
Starfsstöð er á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli og er verkefnið að mestu unnið á ensku. Vegna eðli starfsins er búseta á Suðurnesjum æskileg. Skilyrði er að viðkomandi hafi ökuréttindi.
Umsækjendur þurfa að standast kröfur Landhelgisgæslunnar um líkamlegt og andlegt atgervi. Einnig skal starfsfólk uppfylla skilyrði fyrir öryggisheimild samanber varnarmálalög nr. 34/2008 og reglugerð nr. 959/2012.
-------
Are you passionate about project management and strong organizational practices, with education or experience in construction, infrastructure development, planning and cost control?
The Icelandic Coast Guard seeks a capable, resourceful, and well-organized individual to participate in project management and coordination of infrastructure and construction development within designated security areas in Iceland (see Regulation No. 964/2021 on the geographical boundaries of security and defense areas and Regulation No. 500/2025 on NATO and Icelandic state facilities and telecommunication systems used for security and defense-related projects). This is a temporary position with the possibility of permanent employment.
Key responsibilities:
- Project management in collaboration with managers and specialists
- Preparation and implementation of projects in cooperation with stakeholders in Iceland and abroad
- Project preparation and execution in collaboration with relevant stakeholders
- Planning, implementation and cost control
- Monitoring authorizations, implementation, administration and financial settlements of projects
- Communication and information sharing with stakeholders
- Ensuring that project preparation, implementation and documentation comply with NATO requirements
- Providing advice to managers, specialists, and contractors
- Developing and maintaining guidelines and plans and preparing reports
- Data collection and information dissemination
- Maintain an overview of the progress of the development of security and defense infrastructure in Iceland
- Liaison with domestic and international stakeholders regarding projects funded by NATO Security Investment Programme in Iceland
Qualifications and requirements:
- University degree relevant to the position, such as civil-, finance- or operational engineering
- Knowledge of project management and planning related to construction projects
- Excellent proficiency in Icelandic and English, as well as strong computer skills
- Interest in defense and security related matters
- Excellent collaboration and communication skills
- Ability to work independently and show initiative, with the capability to perform under pressure
- Strong analytical skills and a solution oriented mindset
- Professional appearance, good conduct, and strong organizational skills
Enska
Íslenska










