Drift EA ses.
Drift EA ses.
Drift EA ses.

Drift EA- Forysta í nýsköpun

Drift EA leitar að drífandi einstaklingi til að starfa við spennandi nýsköpunarverkefni á Íslandi: Ignite Nordic.

Um er að ræða samnorrænt samstarf sem miðar að því að tengja frumkvöðla við fyrirtæki og efla nýsköpun innan starfandi fyrirtækja. Markmiðið er að hjálpa fyrirtækjum og frumkvöðlum að finna nýjar leiðir til nýsköpunar og samstarfs.

Hvað felst í starfinu?

  • Byggja upp og leiða Ignite Nordic á Íslandi.

  • Leiða nýsköpunarstarf með frumkvöðlum og fyrirtækjum á landsbyggðinni.

  • Halda utan um skipulag, fundi og tengslamyndun.

  • Vinna náið með norrænum samstarfsaðilum.

  • Vera hluti af öflugu teymi í Drift EA á Akureyri.

Við leitum að?

Við leitum að einstaklingi sem vill ná árangri, getur unnið sjálfstætt og leitt verkefni á landsvísu frá Akureyri með norrænum samstarfsaðilum og stuðlað að framgangi nýsköpunar innan fyrirtækja.

  • Hefur þú áhuga á að byggja upp og skapa eitthvað nýtt?

  • Áttu auðvelt með samskipti við annað fólk og að byggja upp traust og skapa tengsl?

  • Hefur þú reynslu af því að vinna með fyrirtækjum (á hvaða hátt sem er)?

  • Þekkir þú af eigin raun mikilvægi þess að byggja upp atvinnulíf á landsbyggðinni?

  • Ertu með góða íslensku- og enskukunnáttu?

  • Fylgir þú verkefnum alla leið í mark?

Drift EA

Við bjóðum upp á fjölbreytt og ábyrgðarmikið starf í skemmtilegu og metnaðarfullu starfsumhverfi þar sem nýsköpun og frumkvæði eru í fyrirrúmi.

Drift EA er miðstöð frumkvöðla og nýsköpunar sem styður við vöxt sprotafyrirtækja með ráðgjöf, fjármögnun og aðstöðu.

Drift EA mun leiða Ignite verkefnið á Íslandi og vinna í nánu samstarfi við vistkerfi nýsköpunar hér á landi, með það að markmiði að tengja frumkvöðla og nemendur við áskornarnir frá öflugum fyrirtækjum á Íslandi.

Nánari upplýsingar veitir Sesselja Barðdal Reynisdóttir: Netfang: [email protected]

Auglýsing birt10. apríl 2026
Umsóknarfrestur20. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Drift EA
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar