Reykjalundur
Reykjalundur
Reykjalundur

Sviðsstjóri þjálfunar

Viltu leiða metnaðarfullt starf endurhæfingar á Reykjalundi.

Laus er til umsóknar staða sviðsstjóra þjálfunar á Reykjalundi. Innan fagsviðsins starfa m.a. sjúkraþjálfarar, íþróttafræðingar, sundlaugarverðir og aðstoðarfólk, alls um 30 manns.

Sviðsstjóri þjálfunar gegnir leiðandi hlutverki í þverfaglegri endurhæfingu í nánu samstarfi við framkvæmdastjóra lækninga um fagleg málefni og framþróun. Sviðsstjóri ber ábyrgð á daglegum rekstri einingar sinnar, þ.m.t. rekstur sundlaugar, íþóttahúss og heilsuræktar. Hann leiðir einnig skipulagningu starfa innan meðferðarteyma og þvert á meðferðarteymi þar sem það á við.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Verkefnastjórnun.
  • Leiða, þróa og stefnumóta starfsemi þjálfunar.
  • Tryggja gæði og samræmi þjónustu.
  • Greina tækifæri til umbóta.
  • Fylgja eftir árangri lykilmælikvarða og þjónustuferla.
  • Ber ábyrgð á fjármálum og rekstri einingar.
  • Situr í stýrihópi stjórnenda Reykjalundar.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Háskólanám sem nýtist í starfi.
  • Framhaldsnám í stjórnun, t.d. verkefnastjórn er kostur.
  • Framúrskarandi samstarfs- og samskiptahæfni
  • Þekking og reynsla af stjórnun og rekstri.
  • Frumkvæði, leiðtogahæfni og metnaður til að ná árangri.

Umsókn skal fylgja náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afrit af prófskírteinum. Öllum umsóknum verður svarað.

Upplýsingar um starfið veita Árdís Björk Ármannsdóttir framkvæmdastjóri lækninga [email protected] og Guðbjörg Gunnarsdóttir mannauðsstjóri [email protected]

Upplýsingar um Reykjalund má finna á heimasíðu Reykjalundar www.reykjalundur.is

Auglýsing birt10. apríl 2026
Umsóknarfrestur22. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Reykjalundur 125400, 270 Mosfellsbær
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar