

Deildarstjóri búsetuþjónustu og skammtímadvalar
Deildastjóri skipuleggur ásamt forstöðumanni faglegt starf skammtímadvalar barna í Fjarðabyggð. Hann ber ábyrgð á því að börn sem dvelja í skammtímadvöl fái faglega og persónubundna þjónustu með gerð verkreglna og einstaklingsáætlana. Hann vinnur þessar reglur með forráðamönnum barnanna og kynnir þær fyrir starfsmönnum og leiðbeinir þeim í starfi. Hann heldur uppi góðum tengslum við þjónustuþega, aðstandendur, starfsmenn og aðra aðila eins og þörf er á.
Deildarstjóri skipuleggur ásamt forstöðumanni faglegt starf í búsetuþjónustu fullorðinna einstaklinga í Fjarðabyggð. Deildarstjóri vinnur að einstaklingsáætlunum, skipulagi og öðru faglegu starfi fyrir fullorðna íbúa búsetukjarnans.
Deildastjóri er staðgengill forstöðumanns og aðstoðar því við mannaforráð, þar á meðal gerð vaktplana.
Deildastjóri vinnur í dagvinnu og mun hafa skrifstofu á Reyðafirði.
- Skipuleggur starfsemi skammtímadvalar barna í Fjarðabyggð.
- Hann ber ábyrgð á því að dvöl barna í skammtímadvöl taki mið af þörfum þeirra jafnt
- líkamlegum, andlegum sem og félagslegum þörfum.
- Hann sér til þess að öll börn sem dvelja í skammtímadvöl hafi einstaklingsmiðaða þjónustu áætlun þar sem fram koma öll helstu atriði sem lúta að umönnun, samskiptum, virkni úrræðum og áhugamálum.
- Hann sér til þess að starfsmenn hafi þá þjálfun og þær upplýsingar sem þörf er á til að sinna þeim börnum sem dvelja í skammtímadvöl á sem bestan hátt.
- Hefur umsjá og ábyrgð á að starfsmenn fylgi viðurkenndu verklagi og þjónustuáætlunum ásamt forstöðumanni.
- Leiðbeinir starfsmönnum við að veita notendum einstaklingsmiðaðan persónulegan stuðning í daglegu lífi.
- Háskólapróf á sviði félags-, heilbrigðis- eða menntavísinda og reynslu sem nýtist í starfi er æskilegt.
- Viðkomandi þarf að vera orðin 18 ára.
- Hreint sakavottorð.
- Þörf er á staðgóðri þekkingu á uppeldi og umönnun barna og hafa færni til að veita þjónustu á grundvelli leiðbeininga sérfræðinga.
- Áhugi á málefnum fatlaðs fólks og áhugi á að afla sér meiri þekkingar.
- Hæfni í mannlegum samskiptum.
- Deildastjóri þarf að geta unnið sjálfstætt og sýnt framtakssemi í starfi.
- Mikilvægt er að umsækjandi tali, skrifi og skilji íslensku
Enska
Íslenska
Pólska










