Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær

Starfsmenn í tímavinnu – Lækur

Leitað er að metnaðarfullum og áhugasömum einstaklingi í tímavinnu á Læk, sem er athvarf fyrir einstaklinga með geðrænar áskoranir. Markmið Lækjar er að draga úr félagslegri einangrun og auka lífsgæði. Í boði er spennandi og lærdómsríkt starf með fjölbreyttum verkefnum sem unnið er í tilfallandi tímavinnu.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Virkja gesti á þeirra forsendum/fjölbreytt verkefni
  • Móttaka gesta
  • Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Áhugi á málaflokknum
  • Reynsla af störfum með geðfötluðu fólki er æskileg
  • Hugmyndarík/ur
  • Sýna frumkvæði og jákvæðni í samskiptum og starfi
  • Hæfni í mannlegum samskiptum, framtakssemi og samstarfsvilji
  • Íslenskukunnátta

Æskilegt er að viðkomandi hafi náð 20 ára aldri, en skilyrði er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð

Upplýsingar um starfið veitir Brynja Rut Vilhjálmsdóttir, sími: 664-5746 eða 585-5770, eða í gegnum tölvupóst: [email protected]

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðar (STH).

Umsóknarfrestur er til og með 21.april 2026

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Auglýsing birt7. apríl 2026
Umsóknarfrestur21. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Staðarberg 6, 221 Hafnarfjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar