NPA miðstöðin
NPA miðstöðin
NPA miðstöðin

NPA aðstoðarfólk óskast / NPA assistants wanted

---------------
English Below
---------------

NPA aðstoðarfólk óskast

Ég er fatlaður karlmaður sem leitar að persónulegu aðstoðarfólki (notendastýrð persónuleg aðstoð – NPA) til að aðstoða mig við daglegar athafnir.

Ég er sjálfstæður og ákveðinn einstaklingur sem notar hjólastól. Ég leita að traustu og heiðarlegu aðstoðarfólki sem getur aðstoðað mig við ýmis verkefni daglegs lífs, svo sem matreiðslu, persónulegt hreinlæti, tiltekt og þrif á heimili, aðstoð í og úr rúmi, hjólastól og bíl, svo eitthvað sé nefnt.

Aðstoðin fer fram á heimili mínu og á þeim stöðum sem ég fer um í daglegu lífi. Ég hef gaman af því að keyra, hlusta á tónlist, ræða um lífið og tilveruna og njóta góðs matar.

Ég legg áherslu á að aðstoðarfólk sé heiðarlegt, snyrtilegt og sýni frumkvæði í starfi, sérstaklega þegar kemur að tiltekt og þrifum.

Starfshlutföll og vaktir í boði.

Í boði eru átta tíma vaktir frá kl. 11:00 til 19:00 alla daga vikunnar. Ég er þó tilbúinn að vera sveigjanlegur og koma til móts við gott aðstoðarfólk ef það hentar að byrja eða enda vaktir örlítið fyrr eða síðar.

Ég sé fyrir mér að ráða einn einstakling í fullt starf (156 klst. á mánuði) og annan í hlutastarf, eða fleiri einstaklinga í hlutastörf, allt eftir fjölda og gæðum umsókna.



------------------------------------------------------------------------------------------------

NPA assistants wanted

I am a disabled man looking for personal assistants (user-controlled personal assistance – NPA) to support me with daily activities.

I am an independent and determined individual who uses a wheelchair. I am looking for reliable and trustworthy assistants to help me with various activities of daily living, such as cooking, personal hygiene, housekeeping and cleaning, assistance in and out of bed, wheelchair, and car, among other things.

The assistance takes place in my home and in the places I go to in my daily life. I enjoy driving, listening to music, discussing life and existence, and enjoying good food.

I am looking for assistants who are honest, well-organized, and able to take initiative in their work, especially when it comes to household tasks and cleaning.

Positions and shifts

Eight-hour shifts are available from 11:00 to 19:00, seven days a week. I am, however, open to being flexible and accommodating good assistants if it suits them to start or end shifts a little earlier or later.

I expect to hire one full-time employee (156 hours per month) and one part-time employee, or several part-time employees, depending on the number and quality of applications.

Menntunar- og hæfniskröfur

Ég er að leita að heiðarlegu, stundvísu og snyrtilegu aðstoðarfólki sem getur tekið tilsögn, sýnt frumkvæði og aðstoðað mig með bros á vör.
Aðstoðarfólk þarf ekki að hafa fyrri reynslu af aðstoð við fatlað fólk.

I am looking for assistants who are honest, punctual, and well-organized, who can follow instructions, take initiative, and assist me with a positive attitude.

No prior experience working with disabled people is required.



Fríðindi í starfi

Stytting vinnuvikunnar
Fullt starf = 36 klst per viku.
Sveigjanlegur vinnutími í boði fyrir gott fólk.
Helgarvinna á fullu álagi í boði

Shortened work week
Full-time = 36 hours per week
Flexible working hours available for the right person
Weekend shifts available at full premium pay

Auglýsing birt31. mars 2026
Umsóknarfrestur10. apríl 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Valkvætt
Mjög góð
ÍslenskaÍslenska
Valkvætt
Mjög góð
Staðsetning
Salahverfi
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar