

Laust starf NPA aðstoðarkonu í vor
Ég er að leita að aðstoðarkonu í 80-100 % starf í teymið mitt. Starfið er laust um miðjan apríl og gæti hentað sem sumarstarf eða fast starf ef vel gengur. Ég er hreyfihömluð kona og nota hjólastól. Eftir að ég byrjaði með NPA 2012 þá hef ég getað stundað háskólanám, verið í vinnu og tekið virkan þátt í samfélaginu á mínum forsendum. NPA miðstöðin er vinnuveitandi aðstoðarfólks og eru laun samkvæmt kjarasamningi Eflingar og NPA miðstöðvarinnar. Aðstoðarfólk í NPA þjónustu vinnur í samræmi við hugmyndafræðina um sjálfstætt líf. Þetta þýðir að fatlað fólk stýrir eigin aðstoð; hvaða verk eru unnin, hver framkvæmir þau, hvar og hvenær aðstoðin fer fram.
Hlutverk og ábyrgð
Starf aðstoðarkonu felst í að aðstoða mig við athafnir daglegs lífs þar sem ég er í hlutverki verkstjórnanda og leiðbeini með að aðstoða mig við ýmis verk eins og í bað, klæðast, elda, þrífa, aka bílnum mínum, versla, sinna erindum og störfum tengt menningu og listum. Vinnustaður aðstoðarfólks er mitt heimili og þar sem ég er hverju sinni. Mikilvægt er að aðstoðarfólk eigi auðvelt með að lesa í aðstæður og geti dregið sig í hlé. Ég vil geta verið í ein með sjálfri mér, unnið í tölvunni, fengið gesti, horft á sjónvarpið og átt samtal við maka án þess að aðstoðarfólk taki þátt í samræðum. Þó starf aðstoðarkonu sé persónulegt þá þarf hún ekki að vita allt um mitt einkalíf og öfugt. Ég kýs að hafa aðstoðarfólk sem er ,,faglegt“ fremur en að það virki eins og vinkona mín. Aðstoðarfólk er bundið þagnarskyldu og því er trúnaður og traust lykilatriði.
Vaktafyrirkomulag
Vaktir eru virka daga og um helgar þar sem aðstoðarfólk vinnur yfirleitt 12-24 tíma vaktir og gistir yfir nótt (hvíldarvakt á launum) í sér herbergi/starfsmannaaðstöðu fyrir aðstoðarfólk, sem einnig hefur aðgang að sér baðherbergi. Aðstoðarfólk vinnur oft 1-3 vaktir í viku en þurfa einnig að geta tekið aukavaktir ef það eru forföll vegna veikinda þar sem ég get ekki verið án aðstoðar.
Hæfni og eiginleikar
Tala íslensku, vera líkamlega hraust og verklagin.
Geta tekið leiðsögn og vera opin fyrir því að læra nýja hluti.
Sveigjanleg, þolinmóð og jákvæð í samskiptum.
Sýnt frumkvæði og borið ábyrgð á verkefnum sem aðstoðarfólki er falið.
Umsækjandi þarf að vera orðinn 22 ára, hafa hreint sakavottorð og vera reyklaus.
Bílpróf og ökureynsla er skilyrði þar sem aðstoðatkonur aka bifreið minni.
Umsóknarfrestur er til 31. mars n.k.
Íslenska


















