Reykjanesbær
Reykjanesbær
Reykjanesbær

Velferðarsvið – Þjónustukjarni- heimili fatlaðs fólks, sumarafleysingar

Starfsfólk óskast í sumarafleysingar á heimili fatlaðs fólks í þjónustukjarna Suðurgötu í Reykjanesbæ.

Þjónustukjarni Suðurgötu er sólarhringsþjónusta fyrir fatlað fólk. Þar búa átta íbúar með ólíkar stuðningsþarfir. Unnið er eftir hugmyndafræði þjónandi leiðsagnar.

Um er að ræða tvö tímabundin 80% vaktavinnustörf þar sem unnið er á dag-, kvöld-, helgar- og næturvöktum. Ráðning er frá 15. júní og er starfstímabil um 2-3 mánuðir.

Gildi Reykjanesbæjar eru virðing, eldmóður og framsækni og mikilvægt er að viðkomandi endurspegli þau gildi í sínum störfum.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Einstaklingsmiðuð persónuleg þjónusta
  • Aðstoð við heimilishald
  • Aðstoð við persónulegt hreinlæti
  • Stuðningur við samfélagsþátttöku íbúa bæði innan og utan heimilis
  • Önnur tilfallandi störf
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla af störfum með fötluðu fólki er kostur
  • Hæfni í mannlegum samskiptum
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Jákvæðni, sveigjanleiki og þjónustulund
  • Góð Íslenskukunnátta
  • Hreint sakarvottorð
Fríðindi í starfi

•    Bókasafnskort
•    Gjaldfrjáls aðgangur að menningarhúsum
•    Gjaldfrjáls aðgangur í sund
•    Gjaldfrjáls aðgangur í strætó

Auglýsing birt13. mars 2026
Umsóknarfrestur26. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Suðurgata 19, 230 Reykjanesbær
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.Hreint sakavottorðPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SveigjanleikiPathCreated with Sketch.TeymisvinnaPathCreated with Sketch.Umönnun (barna/aldraðra/fatlaðra)PathCreated with Sketch.Þolinmæði
Starfsgreinar
Starfsmerkingar