

Ég óska eftir aðstoðarfólki 20 ára og eldra í NPA teymið mitt
Starfið felur í sér að aðstoða mig við flestar athafnir daglegs lífs vegna hreyfihömlunar, m.a. við heimilisstörf, persónulegt hreinlæti og fleira. Æskilegt er að umsækjandi hafi reynslu af því að umgangast börn.
Starfið felur einnig í sér að vera framlenging á mér í hverju sem ég vil taka mér fyrir hendur frá degi til dags í lífi, leik og starfi.
Ég leita eftir fólki sem er lausnamiðað í breytilegum aðstæðum og gott í mannlegum samskiptum.
Ég er að leita eftir tvemur starfsmönnum í hlutastarf. Um er að ræða dagvaktir bæði um virka daga og helgar þar sem unnið er viku í senn og svo fylgir frívika. Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningum Eflingar, nánari upplýsingar má finna á Kjarasamningar fyrir NPA aðstoðarfólk
Starfið byggir á hugmyndafræðinni um sjálfstætt líf, sem hægt er að lesa nánar um á: NPA miðstöðin
Ekki er gerð krafa um starfsreynslu eða sérstaka menntun, en lögð er áhersla á að umsækjendur temji sér stundvísi, jákvæðni, heiðarleika og virðingu í samskiptum.
Reykleysi á vinnutíma, ágætis Íslenskukunnátta og bílpróf eru skilyrði.
Vinnuaðstæður eru mjög góðar í nýju húsnæði með sérherbergi fyrir starfsmann.
Um er að ræða framtíðarstarf og æskilegt er að umsækjendur gætu hafið störf sem fyrst.
Íslenska

















