Lyfja
Lyfja
Lyfja

Lyfja Grafarholti - þjónusta og ráðgjöf

Við leitum að jákvæðum og sjálfstæðum einstaklingi með ríka þjónustulund í sölu og afgreiðslu í Lyfju Grafarholti. Starfið felst í að veita almenna ráðgjöf til viðskiptavina um val á vörum og að tryggja góða þjónustuupplifun. Um er að ræða skemmtilegt og fjölbreytt starf á líflegum vinnustað þar sem í boði eru samkeppnishæf laun og gott vinnuumhverfi.

Hlutverk og ábyrgð:

  • Ráðgjöf til viðskiptavina um val á vörum og lausasölulyfjum
  • Þjónusta og almenn afgreiðlustörf
  • Áfyllingar í verslun
  • Afhending lyfja gegn lyfseðli

Hvaða hæfni þarft þú að hafa?

  • Ríka þjónustulund og gott viðmót
  • Áhuga á mannlegum samskiptum
  • Áhuga á heilsu og vellíðan
  • Reynsla af verslunarstörfum er skilyrði
  • Reynsla af störfum í apóteki er kostur

Starfið:

Um er að ræða hlutastarf með möguleika á auknu starfshlutfalli yfir sumartímann. Vinnutími er samkvæmt samkomulagi á opnunartíma verslunar.

Umsækjandi þarf að hafa ágæta íslensku- og enskukunnáttu, hafa náð 18 ára aldri og geta hafið störf í apríl 2026.

Hvers vegna Lyfja?

Lyfja er leiðandi fyrirtæki í íslenskri heilbrigðisþjónustu með það að markmiði að lengja líf og bæta lífsgæði landsmanna. Við leggjum áherslu á faglega og hlýlega þjónustu, heilsueflingu og stöðuga nýsköpun.

Við leggjum okkur fram um að skapa vinnuumhverfi þar sem starfsfólk upplifir jákvæðan starfsanda, fær tækifæri til að þróast í starfi og nýtir hæfileika sína til fulls. Við bjóðum upp á öfluga fræðslu, markvissa starfsþróun og leggjum mikla áherslu á gott jafnvægi milli vinnu og einkalífs.

Lyfja rekur 44 apótek og útibú víðs vegar um landið, sem gefur starfsfólki kost á fjölbreyttum og spennandi tækifærum, hvar sem er á landinu.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Þórhildur Sch Thorsteinsson, lyfsali Lyfju Grafarholti í síma 517-4450 og á [email protected]

Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál.

Auglýsing birt7. mars 2026
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Þjóðhildarstígur 2-6, 113 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.AfgreiðslaPathCreated with Sketch.SölumennskaPathCreated with Sketch.Vinna undir álagiPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar