Lyfja
Lyfja
Lyfja

Við leitum að tveimur lyfsölum í Lyfjuliðið!

Við leitum að framsýnum og metnaðarfullum lyfjafræðingum í tvær stöður lyfsala í verslanir okkar á Granda og í Hafnarstræti.

Sem lyfsali hjá Lyfju ert þú leiðtogi sem berð ábyrgð á að reka apótekið af fagmennsku og metnaði – bæði hvað varðar lyf, vörur í verslun og teymið þitt. Þú skapar faglega, þjónustumiðaða og markmiðadrifna vinnustaðamenningu og sérð til þess að viðskiptavinir upplifi persónulega þjónustu og góða ráðgjöf í takt við stefnu Lyfju og samkvæmt lögum og reglugerðum um lyfsöluleyfi.

Þetta er spennandi tækifæri fyrir manneskju með brennandi áhuga á heilbrigðisþjónustu sem vill hafa áhrif – á viðskiptavini, teymi og árangur Lyfju. Þú verður hluti af öflugum stjórnendahópi Lyfju sem hittist reglulega, styður við hvert annað og fær sérstaka leiðtogaþjálfun til að vaxa í hlutverki sínu.

Við leitum að lyfjafræðingi sem býr yfir:

  • Leiðtogahæfni og færni í að ná fólki með sér
  • Jákvæðni, drifkrafti og framúrskarandi samskiptahæfni
  • Áreiðanleika, metnaði og góðri skipulagsfærni
  • Áhuga á heilsu og vellíðan
  • Skilningi og áhuga á rekstrarumhverfi og verklagi apóteka
  • Að lágmarki tveggja ára starfsreynslu í apóteki
  • Háskólaprófi í lyfjafræði og gildu starfsleyfi

Opnunartími Lyfju Granda: Á virkum dögum er opið kl. 09:00-23:00, kl. 11-19 á laugardögum og sunnudögum.

Opnunartími Lyfju Hafnarstræti: Á virkum dögum er opið kl. 09:00-18:00, kl. 11-16 á laugardögum og lokað á sunnudögum.

Nánari upplýsingar veita Þórbergur Egilsson, forstöðumaður verslanasviðs | [email protected] eða Ásdís Eir Símonardóttir, forstöðumaður mannauðs og menningar | [email protected]

Umsóknarfrestur er til og með 12. mars 2026. Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál.

Hvers vegna Lyfja?

Lyfja er leiðandi fyrirtæki í íslenskri heilbrigðisþjónustu með það að markmiði að auka lífsgæði og efla heilsu. Við rekum 42 verslanir hringinn í kringum landið auk Lyfju Heyrnar og lyfjaskömmtunar. Hjá okkur starfar öflugur hópur heilbrigðismenntaðs og sérþjálfaðs starfsfólks sem styður við viðskiptavini í þeirra heilsueflingu, vinnur að vellíðan og tryggir lyfjaöryggi. Við leggjum áherslu á faglega og hlýlega þjónustu og stöðuga nýsköpun.

Við leggjum okkur fram um að skapa vinnuumhverfi þar sem starfsfólk upplifir jákvæðan starfsanda, fær tækifæri til að þróast í starfi og nýtir hæfileika sína til fulls. Við bjóðum upp á öfluga fræðslu og leggjum mikla áherslu á gott jafnvægi milli vinnu og einkalífs.

Auglýsing birt27. febrúar 2026
Umsóknarfrestur12. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Fiskislóð 3, 101 Reykjavík
Hafnarstræti 19, 101 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar