

Lyfja Reykjanesbæ - Umsjónarmaður verslunar
Við leitum að jákvæðum, skipulögðum og þjónustulunduðum einstaklingi í starf umsjónarmanns verslunar í Lyfju Reykjanesbæ. Umsjónarmaðurinn tekur þátt í daglegu starfi apóteksins, skapar framúrskarandi upplifun fyrir viðskiptavini og styður teymið sitt í faglegu og hlýlegu umhverfi. Starfið heyrir undir lyfsala og felur í sér fjölbreytt verkefni þar sem þjónusta, samskipti og yfirsýn eru lykilatriði. Við bjóðum upp á samkeppnishæf laun og gott vinnuumhverfi.
Hlutverk og ábyrgð:
- Yfirumsjón með verslun og daglegum rekstri
- Að vera fyrirmynd í þjónustu, framkomu og fagmennsku
- Ráðgjöf til viðskiptavina um val á vörum og lausasölulyfjum
- Þjónusta og almenn afgreiðslustörf
- Yfirsýn yfir skipulag verslunar, framstillingar og lager
Hvaða hæfni þarft þú að hafa?
- Ríka þjónustulund, jákvætt viðmót og faglega framkomu
- Skipulagshæfni, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Góða samskiptahæfni og áhuga á mannlegum tengslum
- Áhuga á heilsu og vellíðan
- Góða almenna tölvukunnáttu
- Haldbæra reynslu af verslunarstörfum
Starfið:
Um er að ræða tímabundna ráðningu til eins árs með möguleika á áframhaldandi starfi. Vinnutími er 9:00-16:00 mánudaga-fimmtudaga og 9:00-14:00 á föstudögum.
Umsækjandi þarf að hafa góða íslensku- og enskukunnáttu og geta hafið störf í ágúst.
Hvers vegna Lyfja?
Lyfja er leiðandi fyrirtæki í íslenskri heilbrigðisþjónustu með það að markmiði að auka lífsgæði og efla heilsu. Við rekum 42 verslanir hringinn í kringum landið auk Lyfju Heyrnar og lyfjaskömmtunar. Hjá okkur starfar öflugur hópur heilbrigðismenntaðs og sérþjálfaðs starfsfólks sem styður við viðskiptavini í þeirra heilsueflingu, vinnur að vellíðan og tryggir lyfjaöryggi. Við leggjum áherslu á faglega og hlýlega þjónustu og stöðuga nýsköpun.
Við leggjum okkur fram um að skapa vinnuumhverfi þar sem starfsfólk upplifir jákvæðan starfsanda, fær tækifæri til að þróast í starfi og nýtir hæfileika sína til fulls. Við bjóðum upp á öfluga fræðslu og leggjum mikla áherslu á gott jafnvægi milli vinnu og einkalífs. Starfsfólk Lyfju nýtur góðra kjara á vörum og þjónustu hjá ELKO, Krónunni, Lyfju og N1, sem öll eru hluti af Festi hf.
Frestur til að sækja um er til og með 15. maí en unnið verður úr umsóknum jafn óðum og þær berast.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Sólveig Óskarsdóttir, lyfsali Lyfju Reykjanesbæ í síma 421-6565 og á [email protected]
Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál.
Íslenska
Enska





















