Lyfja
Lyfja
Lyfja

Við leitum að lyfjafræðinemum í Lyfjuliðið í sumar

Ertu í lyfjafræði og vilt fá raunverulega innsýn í starf lyfjafræðings?

Hjá Lyfju fá lyfjafræðinemar tækifæri til að læra af reyndu fagfólki, taka virkan þátt í daglegu starfi apóteks og byggja upp sterkan grunn fyrir framtíðina. Þú munt starfa í líflegu umhverfi þar sem fagleg þjónusta og velferð viðskiptavina er í forgrunni.

Hvað felst í starfinu?

  • Ráðgjöf til viðskiptavina um val á vörum
  • Afgreiðsla lausasölulyfja og heilsutengdra vara
  • Stuðningur og handleiðsla lyfjafræðinga og annars fagfólks í heilbrigðisþjónustu

Hverjum leitum við að?

Við leitum að lyfjafræðinemum sem:

  • hafa áhuga á heilbrigðisþjónustu
  • eru með ríka þjónustulund og gott viðmót
  • hafa áhuga á heilsu og vellíðan
  • vilja læra og þróast í faglegu umhverfi
  • hafa góða íslenskukunnáttu

Starfið:

Um sumarstarf er að ræða með möguleika á áframhaldandi hlutastarfi meðfram námi. Vinnutími er samkvæmt samkomulagi á opnunartíma verslunar.

Hvers vegna Lyfja?

Lyfja er leiðandi fyrirtæki í íslenskri heilbrigðisþjónustu með það að markmiði að auka lífsgæði og efla heilsu. Við rekum 42 verslanir hringinn í kringum landið auk Lyfju Heyrnar og lyfjaskömmtunar. Hjá okkur starfar öflugur hópur heilbrigðismenntaðs og sérþjálfaðs starfsfólks sem styður við viðskiptavini í þeirra heilsueflingu, vinnur að vellíðan og tryggir lyfjaöryggi. Við leggjum áherslu á faglega og hlýlega þjónustu og stöðuga nýsköpun.

Við leggjum okkur fram um að skapa vinnuumhverfi þar sem starfsfólk upplifir jákvæðan starfsanda, fær tækifæri til að þróast í starfi og nýtir hæfileika sína til fulls. Við bjóðum upp á öfluga fræðslu og leggjum mikla áherslu á gott jafnvægi milli vinnu og einkalífs.Starfsfólk Lyfju nýtur góðra kjara á vörum og þjónustu hjá ELKO, Krónunni, Lyfju og N1, sem öll eru hluti af Festi hf.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Anna Sólmundsdóttir, lyfjafræðingur á [email protected] og Edda Rós Skúladóttir, mannauðssérfræðingur á [email protected]

Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál.

Auglýsing birt10. febrúar 2026
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Starfstegund
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar