GN
GN

NPA aðstoðarmanneskja óskast í hlutastarf

Ég er kona um þrítugt sem notast við hjólastól og óska eftir aðstoðarmanneskju í hlutastarf. Starfið felur að mestu í sér að hjálpa mér með heimilisstörf, versla, elda mat og aðstoða mig með hundinn minn en einnig líkamlega aðstoð þess á milli.

Ég bý í notalegri og rúmgóðri eigin íbúð í Grafarholtinu með unnustanum mínum og hundinum okkar. Starfshlutfallið sem ég er með í huga er sirka 50-70% en er umsemjanlegt okkar á milli og má vera örlítið lægra.

Umsækjendur skulu vera nokkuð líkamlega hraustir, með bílpróf, hreint sakarvottorð og eldri en 22 ára. Þá er mikilvægt að viðkomandi sé áreiðanlegur varðandi mætingu, eigi auðvelt með að taka leiðsögn og geti dregið sig í hlé. Laun eru samkvæmt sérkjarasamningi NPA miðstöðvarinnar.

Aukalegir kostir sem eru þó ekki nauðsynlegir er að hafa gaman að eldamennsku og föndri.

Helstu verkefni og ábyrgð

Heimilisstörf, versla, elda mat, líkamleg aðstoð og að aðstoða mig með hundinn minn.

Auglýsing birt8. mars 2026
Umsóknarfrestur31. mars 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
ÍslenskaÍslenska
Valkvætt
Meðalhæfni
Staðsetning
Grafarholt. , 113 Reykjavík
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar