

Starfsmaður í móttöku tannlæknastofu
Hlýja tannlæknastofa í Álfheimum óskar eftir þjónustulunduðum og skipulögðum einstaklingi til starfa í móttöku stofunnar. Um er að ræða fullt starf og er vinnutími 08:00-16:00 mánudaga til fimmtudaga og 08:00-14:00 á föstudögum. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Í boði er fjölbreytt starf í jákvæðu og faglegu starfsumhverfi. Umsóknarfrestur er til og með 22. mars 2026.
Móttaka og þjónusta við viðskiptavini við komu á stofuna
Tryggja faglega og hlýlega þjónustu við viðskiptavini
Umsjón með greiðslum, reikningagerð og afgreiðslu
Tímapantanir og breytingar á tímum
Umsjón með að biðstofa sé snyrtileg og alltaf til fyrirmyndar
Önnur almenn skrifstofu- og móttökuverkefni eftir þörfum
Reynsla af afgreiðslu- eða móttökustörfum er æskileg
Góð íslensku- og enskukunnátta
Rík þjónustulund og jákvætt viðmót
Góð hæfni í mannlegum samskiptum
Hæfni til að tileinka sér nýja þekkingu fljótt og vel
Frumkvæði og faglegur metnaður
Íslenska
Enska










