NPA miðstöðin
NPA miðstöðin
NPA miðstöðin

Óska eftir konum á 2-2-3 vaktir 🌸

Ég er heimavinnandi tveggja barna húsmóðir í Breiðholti og er að leita að öflugum konum á aldrinum 25-45 ára. Ég leita að tveimur ofurkonum sem munu skipta með sér 2-2-3 vöktum frá kl. 7-15 virka daga og 8-16 um helgar.

Mig vantar aðstoð við allt milli himins og jarðar en ég nota hjólastól og þarf aðstoð við flest allt sem viðkemur mér, persónulega aðstoð, almenna matseld og heimilishald.

Hæfniskröfur:

  • Umsækjandi þarf að vera líkamlega hraust og geti unnið sjálfstætt.
  • Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
  • Bílpróf er nauðsynlegt (almenn ökuréttindi).
  • Íslenskukunnátta skilyrði / Icelandic speaking only.

Starfið byggir á hugmyndafræðinni um sjálfstætt líf og aðstoðarfólkið mitt tekur að sér það hlutverk að vera einskonar framlenging af mér í þeim verkefnum sem ég þarfnast aðstoðar við.

Laun eru samkvæmt sérkjarasamningum NPA við Eflingu. Skoðið laun og réttindi hér: https://www.npa.is/index.php/storf/kjarasamningar-helstu-upplysingar

Hlakka til að heyra í ykkur :)

Auglýsing birt24. febrúar 2026
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Urðarhvarf 8, 203 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar