Skammtímadvöl Leirvogstungu
Skammtímadvöl Leirvogstungu
Skammtímadvöl Leirvogstungu

Skammtímadvöl fyrir börn

Við hjá Mosfellsbæ óskum eftir að ráða öflugt og framsækið sumarstarfsfólki í teymið okkar. Við veitum börnum með flókinn og fjölþættan vanda einstaklingsmiðaða þjónustu með það að markmiði að auka félagslega þátttöku og bæta líðan barna. Starfsfólk vinnur eftir hugmyndafræði Þjónandi leiðsagnar og hugmyndafræði um sjálfstætt líf sem og þjónustu - og starfsáætlunum.

Mikið er lagt upp úr úr góðri liðsheild og samvinnu á staðnum.
Um er að ræða sólarhringsþjónustu svo gengið er út frá því að starfsfólk vinni á fjölbreyttum vöktum.
Á virkum dögum eru einungis kvöld- og nætuvaktir og um helgar eru dag-, kvöld- og næturvaktir.

Sumarstörfin eru í breytilegu starfshlutfalli allt frá 40-80% og verður ráðið frá 10.júní.

Við störfum skv. lögum um fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir nr. 38/2018 og skv. stefnu Mosfellsbæjar í málaflokknum.
Mosfellsbær er öflugt og eftirsótt sveitafélag þar sem gildin virðing, jákvæðni, framsækni og umhyggja eru leiðarljós starfsmanna í daglegu starfi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Veita þjónustunotendum einstaklingsmiðaðan stuðning við athafnir daglegs lífs 
  • Hvetja og styðja þjónustunotendur til sjálfstæðs lífs með valdeflandi stuðningi og aðstoð
  • Fylgja þjónustuáætlunum og verklagsreglum
  • Virkja þjónustunotendur til þátttöku í samfélaginu
  • Veita þjónustunotendum félagsskap og taka þátt í skipulagi hvers dags
  • Stuðla að markvissu og skilvirku samstarfi við þjónustunotendur, aðstandendur, fagaðila og aðra þá sem koma að þjónustu við þjónustunotendur
  • Almenn heimilisstörf
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Áhugi á málefnum fatlaðs fólks og reynsla af störfum með fötluðu fólki er mikill kostur
  • Góð þjónustulund og jákvæðni í starfi
  • Hæfni í mannlegum samskiptum
  • Framtaksemi og samviskusemi
  • Frumkvæði, sjálfstæði og metnaður í starfi
  • Hreint sakavottorð
  • Góð íslenskukunnátta
  • Bílpróf
Auglýsing birt8. apríl 2026
Umsóknarfrestur22. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Þverholt 2, 270 Mosfellsbær
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.ÁreiðanleikiPathCreated with Sketch.FagmennskaPathCreated with Sketch.Fljót/ur að læraPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.SveigjanleikiPathCreated with Sketch.Teymisvinna
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar