heilsuleikskólinn Urriðaból II
heilsuleikskólinn Urriðaból II
heilsuleikskólinn Urriðaból II

Þroskaþjálfi

Okkur vantar Þroskaþjálfa til starfa hjá okkur í leikskólann Urriðaból 2.

Urriðaból 2 er 6 deilda leikskóli staðsettur í Urriðaholti í Garðabæ með 126 börnum. Við vinnum eftir Heilsustefnunni og leggjum áherlsu á sköpun, hreyfingu og vellíðan okkar nemenda.

Leikskólinn er starfræktur í nýju húsi við Holtsveg 20 þar sem öll aðstaða er til fyrirmyndar og starfsaðstæður einstaklega góðar. Við leggjum mikið upp úr því að starfsfólki líði vel, umbunum fyrir góða mætingu og erum skemmtilegur vinnustaður.

Við erum nýr skóli sem er enn í uppbyggingu en erum búin að fylla skólann. Við erum með þó nokkra sérkennslu og vantar öflugan aðila til að sinna börnum í leikskólanum sem þurfa þjálfun og aðstoð við ýmsar athafnir.

Frekari upplýsingar veitir Jónína Einarsdóttir [email protected] leikskólastjóri.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Vinna undir stjórn sérkennslustjóra.
  • Sinna nemendum með sérþarfir  við ýmsar daglegar athafnir og þjálfun. 
  • Gerð einstaklingsnámskráa ásamt sérkennslustjóra.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Hafa lokið námi í Þroskaþjálfun og starfsleyfi sem slíkur / leyfisbréf leikskólakennara er kostur.
  • Góður í mannlegum samskiptum.
  • Metnaður og áhugi fyrir starfi með nemendur með sérþarfir.
  • Reynsla í starfi með börnum er kostur.
  • Hreint sakavottorð er skilyrði.
  • Mjög góð íslenskuþekking er skilyrði - ekki verður tekið við umsóknum á ensku. 
Fríðindi í starfi
  • Viðveruhvati
  • Íþróttastyrkur
  • 3 máltíðir (eldað á staðnum)
Auglýsing birt8. apríl 2026
Umsóknarfrestur22. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Holtsvegur 1, 210 Garðabær
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.KennariPathCreated with Sketch.Þroskaþjálfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar