Klettabær
Klettabær
Klettabær

Sumarstarf í Klettabæ

Klettabær leitar að öflugum og lausnamiðuðum einstaklingum með jákvætt viðhorf og framúrskarandi samskiptahæfileika til að sinna starfi ráðgjafa í sumarstarfi.
Auglýst er eftir einstaklingum bæði í fullt starf og hlutastarf, þar sem unnið er á vöktum.

Starf ráðgjafa felur í sér stuðning og aðstoð við þjónustunotendur í þeirra daglega lífi, s.s. í félagslegri þátttöku og við athafnir daglegs lífs. Starfið krefst þess að ráðgjafi geti unnið bæði sjálfstætt og í teymi, ásamt getu til að tileinka sér þá faglegu nálgun og verklagsreglur sem unnið er eftir hverju sinni. Starfið krefst góðrar samvinnu og samstarfs við stjórnendur og alla þá sem koma að málum þjónustunotenda. 

Klettabær starfrækir búsetu- og félagslega þjónustu til langs og skamms tíma þar sem velferð, réttindi og hagsmunir barna og ungmenna með margþættar þarfir eru ávallt í brennidepli. Sérstök áhersla er lögð á fjölbreytta og einstaklingsmiðaða þjónustu sem byggir á notendasamráði. 

Meginmarkhópur Klettabæjar eru börn og ungmenni með margþættar þarfir sem þurfa sértæka og/eða einstaklingsmiðaða nálgun og þjónustu. Unnið er eftir hugmyndafræði um fjöláfalla- og tengslamiðaðan stuðning. Markmiðið er að stuðla að jöfnum tækifærum ungs fólks til þátttöku og lífsgæða í samfélaginu á eigin forsendum. 

Starfsánægja, góð starfsaðlögun, markviss þjálfun og fræðsla eru í forgrunni hjá Klettabæ.  

Einkennisorð Klettabæjar eru ástríða, fagmennska, gleði og umhyggja. 

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Veita einstaklingsmiðaða þjónustu og stuðning í daglegu lífi. 

  • Aðstoðar og styður þjónustunotanda í félagslegri þátttöku og við athafnir daglegs lífs. 

  • Er fyrirmynd allra þjónustunotenda.   

  • Ber ábyrgð á heimilishaldi á sinni vakt og að fylgjast með að húsnæði, húsbúnaður og ökutæki séu í lagi.    

  • Tileinkar sér þau faglegu viðmið og þær verklagsreglur sem gilda á hverri starfsstöð.  

  • Starfar í samræmi við hugmyndafræði Klettabæjar og fylgir markmiðum og áherslum í einstaklingsbundnum þjónustuáætlunum hvers þjónustunotanda.   

  • Vinnur í samræmi við gildandi lög og samþykkta sáttmála sem ná utan um þjónustunotendur Klettabæjar.  

  • Önnur tilfallandi verkefni.   

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Menntun sem nýtist í starfi er kostur 

  • Reynsla af umönnunar- og eða uppeldisstörfum  

  • Afburða færni í mannlegum samskiptum  

  • Færni í teymisvinnu  

  • Frumkvæði, faglegur metnaður og nákvæmni í starfi  

  • Jákvæðni, sveigjanleiki og lausnamiðun  

  • Hæfni til að starfa eftir öryggisverkferlum    

  • Færni í íslensku bæði í rituðu og mæltu máli  

  • Almenn tölvukunnátta   

Viðkomandi þarf að vera 21 árs, með hreint sakavottorð og bílpróf.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Hólmar Freyr Sigfússon, , [email protected]  og Katrín Vilhjálmsdóttir, [email protected]

Lesa má meira um Klettabæ á www.klettabaer.is 

Auglýsing birt6. mars 2026
Umsóknarfrestur16. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Reykjavíkurvegur 76, 220 Hafnarfjörður
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.Hreint sakavottorðPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.TeymisvinnaPathCreated with Sketch.Umönnun (barna/aldraðra/fatlaðra)
Vinnuumhverfi
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar