Eirberg - Stuðlaberg heilbrigðistækni
Eirberg - Stuðlaberg heilbrigðistækni
Eirberg - Stuðlaberg heilbrigðistækni

Söluráðgjafi í stóma- og þvagleggjaþjónustu

Við leitum að heilbrigðismenntuðum starfsmanni í afleysingu vegna fæðingarorlofs til eins árs með möguleika á áframhaldandi ráðningu. Um er að ræða ráðgjöf, sölu og þjónustu á stóma- og þvagleggjavörum hjá Stuðlabergi heilbrigðistækni. Starfinu fylgja einnig innkaup á vörum fyrir þjónustuna. Einnig mun viðkomandi sinna tilfallandi afleysingum í ráðgjöf til kvenna eftir skurð- og brjóstaaðgerðir.

Starfssvið

  • Móttaka, ráðgjöf og sala
  • Innkaup og vöruáfyllingar

Hæfniskröfur

  • Menntun sem nýtist í starfi
  • Fagleg vinnubrögð og skipulag
  • Rík þjónustulund og nærgætni

Umsóknarfrestur er til 20. mars 2026. Ferilskrá með mynd skal fylgja umsókn. Farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál.

Um er að ræða fullt starf á starfsstöð félagsins að Stórhöfða 25. Móttaka viðskiptavina er á 2. hæð og bjóðum við viðskiptavinum okkar upp á hlýlegt umhverfi og gott næði í afgreiðslu.

Stuðlaberg heilbrigðistækni ehf. er rótgróið þjónustufyrirtæki á heilbrigðissviði sem býður fagaðilum og almenningi vandaðar heilbrigðisvörur og faglega ráðgjöf.

Fjölskyldufyrirtækin Stuðlaberg og Eirberg hafa stutt við bætta heilsu viðskiptavina sinna í 25 ár. Fyrirtækin byggja á traustum faglegum grunni á heilbrigðissviði en meðal starfsfólks eru hjúkrunarfræðingur, iðjuþjálfi, sjúkraþjálfari, þroskaþjálfi og aðrir sérfræðingar í velferðartækni.

Auglýsing birt6. mars 2026
Umsóknarfrestur20. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Stórhöfði 25, 110 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.HjúkrunarfræðingurPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.SjúkraliðiPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.SölumennskaPathCreated with Sketch.VöruframsetningPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar