
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Velferðasvið ber ábyrgð á áætlanagerð, samhæfingu og samþættingu verkefna á sviði velferðarþjónustu, eftirliti í samræmi við lög, reglur, samþykktir og pólitíska stefnu í velferðarmálum, mat á árangri og þróun velferðarþjónustu og nýrra úrræða og gerð þjónustusamninga um framkvæmd þjónustunnar. Velferðarsvið býr Reykjavíkurborg ennfremur undir að taka við nýjum velferðarverkefnum frá ríki svo sem í málefnum fatlaðra, öldrunarþjónustu og heilsugæslu.
Velferðarsvið ber ábyrgð á framkvæmd þjónustu á sviði velferðarmála, þar með talinni félagsþjónustu fyrir alla aldurshópa og barnavernd. Velferðarsvið ber ábyrgð á rekstri þjónustumiðstöðva Reykjavíkurborgar og starfseininga sem undir þær heyra. Velferðarsvið vinnur með velferðarráði og barnaverndarnefnd og sinnir málefnum þeirra. Þjónustumiðstöðvar vinna með hverfaráðum í hverfum borgarinnar.
Velferðarsvið sér einnig um rekstur miðlægrar velferðarþjónustu þvert á borgina, átaksverkefna vegna endurhæfingar fólks, heildstæðu forvarnastarfi í Reykjavík, inntöku í húsnæðis- og búsetuúrræði, rekstur hjúkrunarheimila, rekstur framleiðslueldhúss og rekstur heimahjúkrunar í Reykjavík samkvæmt samningi við ríkið þar um.

Spennandi sumarstarf í Búsetukjarna Grafarholti
Velferðarsvið óskar eftir að ráða starfsmann í búsetuþjónustu fyrir geðfatlað fólk í íbúðakjarna Þórðarsveigi 1-5. Æskilegt er að viðkomandi geti byrjað sem fyrst. Um er að ræða sumarafleysingu (frá apríl og út ágúst). Fullt starf í vaktavinnu. Möguleiki á hlutastarfi eftir sumarið!
Búsetukjarninn er með sólarhringsþjónustu og með það að markmiði að mæta þörfum íbúa á heildstæðan og einstaklingsmiðaðan hátt.
Íbúum er veittur stuðningur, ráðgjöf og valdefling til að bæta lífsgæði sín.
Unnið er eftir þjónandi leiðsögn og hugmyndafræði um sjálfstætt líf.
Verið er að leita eftir starfsmanni til að vinna í vaktavinnu, það eru dagvaktir, kvöldvaktir og í einhverjum tilfellum næturvaktir.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Einstaklingsmiðuð og sveigjanleg aðstoð við allar athafnir daglegs lífs.
- Fylgja eftir þjónustuáætlunum og verklagsreglum.
- Hvetja og styðja til sjálfstæðis og félagslegrar virkni.
- Sinna umönnun og vera vakandi yfir andlegri og líkamlegri líðan íbúa.
- Stuðla að jákvæðum samskiptum við íbúa og annað samstarfsfólk.
- Þátttaka í sköpun og þróun nýrra tækifæra fyrir íbúa.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Góð almenn menntun.
- Reynsla af starfi með geðfötluðum einstaklingum og/eða af umönnunarstörfum kostur.
- Góð hæfni í mannlegum samskiptum, frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum.
- Umhyggja og þolinmæði.
- Bílpróf kostur.
- Íslenskukunnátta B1 samkvæmt evrópska tungumálarammanum.
- Æskilegt er að umsækjandi hafi náð 20 ára aldri.
- Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar.
Fríðindi í starfi
- Ýmis hlunnindi fylgja því að starfa hjá Reykjavíkurborg en þau má sjá hér.
- Sund og menningarkort Reykjavíkurborgar
- Heilsustyrkur
- Samgöngustyrkur
- 36 stunda vinnuvika
Auglýsing birt6. mars 2026
Umsóknarfrestur22. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Borgartún 12-14, 105 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
ÁreiðanleikiAðlögunarhæfniDrifkrafturFrumkvæðiJákvæðniMetnaðurSjálfstæð vinnubrögð
Vinnuumhverfi
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (22)

Stuðningsfulltrúi í sumarafleysingu á Laugavegi 105
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Hjúkrunarfræðingur í Endurhæfingarteymi
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Sjúkraliði í heimahjúkrun Sléttuvegi
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Sjúkraliði í heimahjúkrun
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Sumarstarf í heimahjúkrun- tækifæri fyrir sjúkraliðanema/hjúkrunarfræðinema í Vesturmiðstöð
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Sumarstarf í heimahjúkrun- tækifæri fyrir sjúkraliðanema/hjúkrunarfræðinema
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Iðjuþjálfi í endurhæfingarteymi
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Stuðningsfulltrúi á íbúðarkjarna Rökkvatjörn - sumarstarf
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Stuðningsráðgjafi á íbúðarkjarna Rökkvatjörn - afleysing
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Skemmtileg sumarvinna á íbúðakjarna í Laugardalnum
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Uppeldis- og meðferðarráðgjafi á Mánabergi
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Stuðningsfulltrúa vantar í sumarafleysingar á íbúðakjarna í Grafarvogi
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Hjúkrunarfræðingur í heimahjúkrun
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Spennandi sumarstarf stuðningfulltrúa í íbúðakjarna í Grafarholti
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Við leitum af háskólamenntuðum stuðningsráðgjafa
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Spennandi sumarstarf: stuðningsfulltrúi óskast á besta stað í bænum
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Sumarstarf sem skiptir máli! Vertu hluti af öflugu og samheldnu teymi í Stjörnugróf 11
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Spennandi starf í skaðaminnkandi íbúðakjarna
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Sumarstarf á íbúðarkjarna í Grafarvogi
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Sumarstarf - færanlegt búsetuteymi Liðsaukans
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Komdu að vinna í Árskógum
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Sjúkraliði/sjúkraliðanemi/hjúkrunarnemi sumarafleysing
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Sambærileg störf (12)

Ferðaþjónusta fatlaðra - Akstur
Teitur

Sumarstarf í skammtímadvöl fyrir fötluð börn - Svöluhraun
Hafnarfjarðarbær

Óska eftir NPA aðstoðarfólki
NPA miðstöðin

Stuðningsfulltrúi í sumarafleysingu á Laugavegi 105
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Umsóknir fyrir ungmenni með fötlun
Sumarstörf - Kópavogsbær

Sumarstarfsmaður á skammtímadvöl - Hnotuberg
Hafnarfjarðarbær

Sumarstarf í Klettabæ
Klettabær

Arnarskóli - sumarstarfsfólk
Arnarskóli

Sumarafleysingar á heimili fyrir fatlað fólk - Berjahlíð
Hafnarfjarðarbær

Sumarstarf á heimili fyrir fólk með fatlanir
Sumarstörf - Kópavogsbær

Looking for a person with horse experience!
NPA miðstöðin

Fjölbreytt og skemmtilegt hlutastarf og sumarstörf í búsetukjarna
Búsetukjarnar í Skálahlíð