Suðurnesjabær
Suðurnesjabær

Sumarfrístund - sumarstarf

Suðurnesjabær auglýsir eftir starfsmanni í sumarfrístund fyrir fötluð börn og ungmenni sem ekki geta nýtt sér önnur sumarúrræði sveitarfélagsins.

Markmið starfseminnar er að skapa öruggt, skemmtilegt og uppbyggilegt umhverfi þar sem lögð er áhersla á félagslegt samneyti, sjálfstæði og frumkvæði þátttakenda.

Um er að ræða 100% starf á tímabilinu 8. júní – 31. júlí 2026.

Helstu verkefni

  • Þátttaka í skipulagningu og framkvæmd daglegrar dagskrár
  • Stuðningur við börn og ungmenni í daglegum athöfnum
  • Samskipti og samstarf við foreldra og samstarfsfólk

Hæfniskröfur

  • Reynsla af starfi með börnum
  • Reynsla af starfi með fötluðum einstaklingum er kostur
  • Góð samskiptahæfni og jákvætt viðmót
  • Áreiðanleiki og stundvísi
  • Frumkvæði, sjálfstæði og skipulagshæfni

Ráðið er í starfið frá og með 8. júní 2026.

Umsóknarfrestur er til og með 6. apríl 2026.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðeigandi stéttarfélags.

Með umsókn skal fylgja ferilskrá, kynningarbréf og upplýsingar um umsagnaraðila. Öllum umsóknum verður svarað.

Nánari upplýsingar veita Guðrún Björg Sigurðardóttir, sviðsstjóri velferðarsviðs [email protected] og Sigríður Rósa Laufeyjardóttir, teymisstjóri Miðjunnar [email protected] sími: 425-3000

Auglýsing birt30. mars 2026
Umsóknarfrestur6. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar