Suðurnesjabær
Suðurnesjabær

Sérfræðingur – Byggðasafnið á Garðskaga - Tímabundið

Suðurnesjabær auglýsir laust tímabundið starf sérfræðings við Byggðasafnið á Garðskaga. Um er að ræða fullt starf í eitt ár, með möguleika á fastráðningu. Byggðasafnið er nú í mikilli uppbyggingu og því felst í starfinu spennandi tækifæri fyrir áhugasaman og þjónustulipran sérfræðing með menntun á sviði safna. Starfið felur í sér fjölbreytt verkefni, þar á meðal umsjón með safnkosti og skráningum.

Helstu verkefni:

  • Móttaka gesta, leiðsögn um safnið og afgreiðsla í safnverslun. Upplýsingaþjónusta við ferðamenn.
  • Umsjón og ábyrgð á safngripum. Móttaka safngripa og ljósmynda, skráning í Sarp.is og frágangur til varðveislu.
  • Þátttaka í uppsetningu sýninga og öðrum miðlunarverkefnum
  • Þátttaka og skipulagning viðburða á vegum safnsins.
  • Kynning og fræðsla á samfélagsmiðlum og markaðsmál í samstarfi við yfirmann
  • Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Háskólamenntun (BA/BS) sem nýtist í safnastarfi.
  • Reynsla og þekking af safnastörfum
  • Þekking á umsjón og skráningu safngripa ásamt ljósmyndun er kostur
  • Vilji og geta til að takast á við fjölbreytt verkefni og tileinka sér nýja færni og þekkingu
  • Góð íslensku- og enskukunnátta, bæði í ræðu og riti
  • Góð samskiptahæfni og þjónustulund.
  • Hæfni til að vinna sjálfstætt og í teymi.
  • Áhugi á safnastarfi, menningu og sögu svæðisins
  • Góð almenn tölvukunnátta.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Margrét I. Ásgeirsdóttir, forstöðumaður safna hjá Suðurnesjabæ, í tölvupósti á netfang [email protected]

Umsóknarfrestur er til og með 8. apríl 2026.

Greinargóð ferilskrá fylgi umsókn og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar, fyrri störfum umsækjanda, menntun og reynslu.

Laun eru greidd samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðeigandi stéttarfélags.

Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

Auglýsing birt30. mars 2026
Umsóknarfrestur8. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Skagabraut 100, 250 Garður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar