Umhverfis- og skipulagssvið
Umhverfis- og skipulagssvið
Umhverfis- og skipulagssvið

Leiðbeinandi fyrir starfsfólk með skerta starfsgetu - sumarstarf

Ert þú góð fyrirmynd sem hefur gaman af mannlegum samskiptum? Nýtur þú þess að vinna úti í fallegu umhverfi?

Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkurborgar auglýsir eftir starfsfólki með áhuga á að starfa með fötluðu fólki og styðja það til atvinnuþátttöku. Leiðbeinandi í sumarstarfi leiðbeinir hópi starfsfólks með skerta starfsgetu m.a. sökum fötlunar. Hóparnir sinna garðyrkjustörfum í Hljómskálagarði og Einarsgarði.

Helstu verkefni og ábyrgð

Verkefni og ábyrgð

Leiðbeina og styðja einstaklinga í daglegum verkefnum sem felast til dæmis í:

  • Hreinsun gróðurbeða og kantskurður.
  • Gróðursetning sumarblóma.
  • Viðhald göngustíga, ruslatínsla og fleira.
Menntunar- og hæfniskröfur

Hæfniskröfur

  • Umsækjendur þurfa að vera 20 ára eða eldri.
  • Nám í þroskaþjálfafræði, tómstunda- og félagsmálafræði eða annað sambærilegt nám er kostur.
  • Reynsla af starfi með fötluðu fólki æskileg.
  • Reynsla af flokksstjórn æskileg.
  • Reynsla af störfum í garðyrkju æskileg.
  • Umsækjendur þurfa að vera með hreint sakavottorð.
  • Almenn ökuréttindi æskileg
Auglýsing birt30. mars 2026
Umsóknarfrestur8. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Borgartún 12-14, 105 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.GarðyrkjaPathCreated with Sketch.Hreint sakavottorðPathCreated with Sketch.Mannleg samskipti
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar