Financial Mechanism Office (FMO)
Financial Mechanism Office (FMO)
Financial Mechanism Office (FMO)

Sérfræðingur í málefnum viðtökuríkja Uppbyggingarsjóðs EES

Viltu stuðla að félagslegum og efnahagslegum jöfnuði í Evrópu?

Skrifstofa Uppbyggingarsjóðs EES (Financial Mechanism Office – FMO) í Brussel leitar að sérfræðingi í málefnum viðtökuríkja sjóðsins. Ríkin sem Uppbyggingarsjóður EES styður eru: Búlgaría, Eistland, Grikkland, Króatía, Kýpur, Lettland, Litáen, Malta, Portúgal, Pólland, Rúmenía, Slóvakía, Slóvenía, Tékkland og Ungverjaland. Að þessu sinni er sérstaklega leitað að fólki með góða þekkingu á málefnum Króatíu, Tékklands og Slóveníu.

Starfið felur í sér að samræma starfsemi sjóðsins í einu eða fleirum viðtökuríkjum og stuðla að góðri framkvæmd verkefna Uppbyggingarsjóðsins. Meðal verkefna er undirbúningur ársfunda viðtökuríkja og gegnir sérfræðingurinn lykilhlutverki í viðræðum um samstarf og samninga undir merkjum sjóðsins. Sérfræðingurinn veitir ráðgjöf um sjóðinn til stjórnvalda í viðtökuríkinu og styður við tvíhliða samstarf á hans vegum.

https://jobs.efta.int/wd/plsql/wd_portal.show_job?p_web_site_id=564&p_web_page_id=607331

Auglýsing birt18. mars 2026
Umsóknarfrestur12. apríl 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Avenue des Arts 19H, 1000 Brussels, Belgium, 999 Belgium
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar