

Sérfræðingur í rannsóknum og nýsköpun hjá Uppbyggingarsjóði EES
Viltu leggja þitt af mörkum til að efla rannsóknir, nýsköpun og samfélag í Evrópu? Viltu taka þátt í að draga úr félagslegum og efnahagslegum ójöfnuði á milli ríkja Evrópska efnahagssvæðisins? Skrifstofa Uppbyggingarsjóðs EES (Financial Mechanism Office – FMO) í Brussel leitar að sérfræðingi á sviði rannsókna og nýsköpunar.
Sérfræðingurinn ber ábyrgð á áætlunum sem miða að því að efla gæði rannsókna og stuðla að rannsóknartengdri nýsköpun í viðtökuríkjum Uppbyggingarsjóðsins. Sérfræðingurinn nýtir fagþekkingu sína til að styðja við undirbúning áætlana, þróun þeirra og framkvæmd og leiðir þverfagleg teymi á skrifstofu Uppbyggingarsjóðsins. Í starfinu felst að byggja upp og viðhalda góðum samskiptum við samstarfsaðila sjóðsins og veita faglega ráðgjöf til gjafa- og viðtökuríkjanna. Ríkin sem Uppbyggingarsjóður EES styður eru: Búlgaría, Eistland, Grikkland, Króatía, Kýpur, Lettland, Litáen, Malta, Portúgal, Pólland, Rúmenía, Slóvakía, Slóvenía, Tékkland og Ungverjaland.
EES-samningurinn tryggir Íslandi aðild að innri markaði ESB. Hluti af meginmarkmiðum samningsins er að draga úr félagslegum og efnahagslegum ójöfnuði í Evrópu og efla samstarf á milli aðildarríkjanna. Uppbyggingarsjóður EES er framlag Íslands til þessara markmiða. Nú er
Enska










