Financial Mechanism Office (FMO)
Financial Mechanism Office (FMO)
Financial Mechanism Office (FMO)

Sérfræðingur í grænum umskiptum hjá Uppbyggingarsjóði EES

Viltu leggja þitt af mörkum til grænna umskipta og grænnar verðmætasköpunar í Evrópu? Viltu taka þátt í að draga úr félagslegum og efnahagslegum ójöfnuði á milli ríkja Evrópska efnahagssvæðisins? Skrifstofa Uppbyggingarsjóðs EES (Financial Mechanism Office – FMO) í Brussel leitar að tveimur sérfræðingum, annars vegar á sviði grænna umskipta og hins vegar á sviði grænnar viðskiptaþróunar og nýsköpunar.

Sérfræðingur sjóðsins á sviði grænna umskipta ber ábyrgð á áætlunum sem miða að því að styrkja getu viðtökuríkjanna til að hrinda grænum umskiptum í framkvæmd. Sérfræðingurinn nýtir fagþekkingu sína til að styðja við undirbúning áætlana, þróun þeirra og framkvæmd og leiðir þverfagleg teymi á skrifstofu Uppbyggingarsjóðsins. Í starfinu felst að byggja upp og viðhalda góðum samskiptum við samstarfsaðila sjóðsins og veita faglega ráðgjöf til gjafa- og viðtökuríkjanna.

Sérfræðingur sjóðsins á sviði grænnar viðskiptaþróunar og nýsköpunar ber ábyrgð á áætlunum sem miða að því að efla grænan iðnað og tækniþróun í viðtökuríkjunum og stuðla að grænum vexti og samkeppnishæfni. Sérfræðingurinn nýtir fagþekkingu sína til að styðja við undirbúning áætlana, þróun þeirra og framkvæmd og leiðir þverfagleg teymi á skrifstofu Uppbyggingarsjóðsins. Í starfinu felst að byggja upp og viðhalda góðum samskiptum við samstarfsaðila sjóðsins og veita faglega ráðgjöf til gjafa- og viðtökuríkjanna.

EES-samningurinn tryggir Íslandi aðild að innri markaði ESB. Hluti af meginmarkmiðum samningsins er að draga úr félagslegum og efnahagslegum ójöfnuði í Evrópu og efla samstarf á milli aðildarríkjanna. Uppbyggingarsjóður EES er framlag Íslands til þessara markmiða. Nú er unnið að undirbúningi áætlana fyrir fjármögnunartímabilið 2021-2028. Heildarfjárveiting á tímabilinu er 3,2 milljarðar evra sem skiptist á milli 15 viðtökuríkja.

https://jobs.efta.int/wd/plsql/wd_portal.show_job?p_web_site_id=564&p_web_page_id=607267

Auglýsing birt18. mars 2026
Umsóknarfrestur8. apríl 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Avenue des Arts 19H, 1000 Brussels, Belgium, 999 Belgium
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar