Samhentir
Samhentir

Innkaupafulltrúi

Samhentir leita að metnaðarfullum og sjálfstæðum innkaupafulltrúa til starfa í öflugu teymi innkaupadeildar fyrirtækisins. Innkaupasviðið hefur umsjón með daglegum innkaupum á stöðluðum og sérhönnuðum umbúðum, samskiptum við birgja, birgðastýringu og umsýslu tollamála með áherslu á gæði, hagkvæmni og áreiðanleika í afhendingum. Innkaupafulltrúi vinnur náið með samstarfsfólki innan fyrirtækisins og hefur mikilvægt hlutverk í því að tryggja skilvirka framkvæmd innkaupa og stöðuga leit að tækifærum til hagræðingar og umbóta.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Umsjón með daglegum innkaupum og samskipti við innlenda og erlenda birgja
  • Gerð og eftirfylgni samninga um verð, gæði og afhendingar
  • Umsjón með kostnaðar- og birgðagreiningum
  • Birgðastýring og eftirfylgni afhendinga
  • Umsjón með almennum tollamálum í tengslum við innkaup
  • Önnur tilfallandi störf
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla af innkaupastörfum eða skyldum verkefnum
  • Góð samskiptahæfni og reynsla af samstarfi við birgja
  • Skipulögð, sjálfstæð og öguð vinnubrögð
  • Greiningarhæfni og viðskiptalegt innsæi
  • Gott vald á íslensku og ensku, bæði í ræðu og riti
  • Þekking á AGR, Microsoft Dynamics NAV eða sambærilegum kerfum er kostur
  • Áhugi á nýtingu gervigreindar í innkaupa- og greiningarvinnu er kostur
  • Þekking eða reynsla af tollamálum er kostur
Auglýsing birt22. apríl 2026
Umsóknarfrestur13. maí 2026
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Suðurhraun 4, 210 Garðabær
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar