
Leitum að innkaupafulltrúa - framtíðarstarf
Ein stærsta heildverslun landsins sem flytur inn og markaðssetur fjölmörg af þekktustu áfengis vörumerkjum heims leitar að öflugum vinnufélaga.
Við leitum að skipulögðum og ábyrgum einstaklingi til starfa á skrifstofu Mekka w&s. Um er að ræða fjölbreytt starf þar sem lögð er áhersla á fagleg vinnubrögð, nákvæmni og góð samskipti.
Starfið felur meðal annars í sér umsjón með innkaupum, aðstoð við bókhald og almenn skrifstofustörf. Í boði eru samkeppnishæf og árangurstengd laun, frábær vinnuaðstaða, hvetjandi vinnuumhverfi og skemmtilegir vinnufélagar.
Helstu verkefni:
-
Umsjón með innkaupum og samskipti við erlenda birgja
-
Eftirfylgni með pöntunum og afhendingu
-
Móttaka og skráning reikninga
-
Aðstoð við bókhald og uppgjör
-
Almenn skrifstofu- og skipulagsverkefni
-
Önnur tilfallandi verkefni
Hæfniskröfur:
-
Háskólamenntun og reynsla sem nýtist í starfi
-
Þekking á bókhaldi og bókhaldskerfum er æskileg
-
Góð skipulagshæfni og nákvæmni í vinnubrögðum
-
Sjálfstæði í vinnu og góð samskiptahæfni
-
Góð tölvukunnátta, greiningarhæfni og talnalæsi
-
Þekking á AGR, Business Central eða sambærilegum kerfum er kostur
-
Mjög gott vald á íslensku og ensku í töluðu og rituðu máli er skilyrði
Við bjóðum:
-
Fjölbreytt og áhugavert starf
-
Gott vinnuumhverfi og samheldinn hóp
Áhugasamir eru hvattir til að senda umsókn og ferilskrá á [email protected] fyrir 4.maí 26.
Íslenska
Enska










