

Fjölbreytt skrifstofustarf
LOGOS lögmannsstofa óskar eftir að ráða jákvæðan og skipulagðan einstakling í fjölbreytt skrifstofustarf á rekstrarsviði stofunnar. Starfið felur í sér hefðbundin skrifstofustörf, auk almennrar aðstoðar við lögmenn stofunnar.
Viðkomandi þarf að búa yfir góðri samskiptahæfni, þjónustulund og nákvæmni auk þess að hafa góða hæfni í tölvuvinnu.
• Aðstoð við frágang dómsskjala og skjalavinnslu.
• Alhliða aðstoð við lögmenn stofunnar.
• Gjaldkerastörf og mögulega almenn bókhaldstengd verkefni.
• Skipulagning funda, veitinga og annarra viðburða á vegum stofunnar.
• Símsvörun, aðstoð við móttöku og almenn samskipti við viðskiptavini.
• Reynsla af sambærilegu starfi á skrifstofu er æskileg.
• Góð tölvukunnátta, sérstaklega í Microsoft Office og rafrænum vinnukerfum.
• Skipulagshæfni, áreiðanleiki og sjálfstæð vinnubrögð.
• Framúrskarandi þjónustulund og lipurð í mannlegum samskiptum.
• Jákvætt viðmót og fagleg framkoma.
• Góð íslensku og ensku kunnátta í töluðu og rituðu máli.
Íslenska
Enska










