SOS Barnaþorpin
SOS Barnaþorpin
SOS Barnaþorpin

Fjármálastjóri

SOS Barnaþorpin á Íslandi óska eftir að ráða öflugan fjármálastjóra til að stýra fjármálum félagsins. Fjármálastjóri ber heildarábyrgð á fjármálum, reikningshaldi og fjárreiðum auk þess að hafa virka aðkomu að stefnumótun og stjórnun félagsins.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Ábyrgð á fjármálastjórn, reikningshaldi og fjárreiðum félagsins
  • Umsjón með árshluta- og ársuppgjöri, gerð ársreikninga og fjárhagsáætlana
  • Greining, samantekt og miðlun fjárhagsupplýsinga til framkvæmdastjórnar, stjórnar og höfuðstöðva
  • Samskipti við endurskoðendur, fjármálastofnanir, systurfélög og höfuðstöðvar
  • Ábyrgð á lögboðnum skýrsluskilum, innra eftirliti og þátttaka í áhættustýringu
  • Yfirsýn yfir fjárfestingar og aðkoma að fjáröflun félagsins
  • Virk þátttaka í framkvæmdastjórn og samstarf við stjórn
  • Aðkoma að stafrænni þróun og rekstri upplýsingatæknikerfa

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Háskólapróf á sviði viðskipta, fjármála eða sambærilegra greina
  • Haldbær reynsla af reikningshaldi, uppgjörsvinnu og gerð ársreikninga
  • Mjög góð þekking og reynsla af Excel
  • Reynsla af greiningu og miðlun fjárhagsupplýsinga
  • Þekking og reynsla af fjárhags- og upplýsingakerfum er kostur
  • Leiðtogahæfileikar og framúrskarandi samskiptahæfni
  • Öguð og skipulögð vinnubrögð, drifkraftur og lausnamiðað hugarfar
  • Gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti

Um SOS Barnaþorpin

SOS Barnaþorpin eru alþjóðleg hjálparsamtök sem hafa séð mun­að­ar­laus­um og yf­ir­gefn­um börn­um um all­an heim fyr­ir fjöl­skyldu og heim­ili síð­an 1949. SOS Barna­þorp­in hafa beina um­sjá með um 70.000 börn­um og ung­menn­um all­an sól­ar­hring­inn. Auk þess sinna sam­tök­in forvarnarstarfi sem gengur út á að aðstoða barnafjölskyldur í sárafátækt til að standa á eigin fótum og nær það starf til yfir hálfrar milljónar barna, ungmenna og foreldra þeirra í yfir 100 löndum.

Hlut­verk sam­tak­anna á Ís­landi er fyrst og fremst að sinna fjár­öfl­un fyr­ir verk­efni syst­ur­sam­taka sinna í yfir 100 lönd­um og sinna upp­lýs­inga­gjöf til styrktarað­ila. SOS Barna­þorp­in á Ís­landi eru vinnu­stað­ur þar sem rík­ir heil­brigð menn­ing, gagn­kvæm virð­ing og góð­ur andi. Samtökin hafa verið Fyrirmyndarfyrirtæki VR undanfarin fjögur ár. Boðið er upp á góða vinnuaðstöðu þar sem viðkomandi fær tækifæri til að þróa og móta starfið. Auk þess er boðið upp á sveigjanleika í starfi þar sem tækifæri eru til símenntunar.

Umsóknarfrestur er til og með 11. maí 2026. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja starfsferilskrá og ítarlegt kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir hæfni viðkomandi sem nýtist í starfi. Unnið er úr umsóknum jafn fljótt og þær berast. Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um starfið. Farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál og þeim svarað að ráðningu lokinni.

Nánari upplýsingar veitir Sigríður Svava Sandholt ([email protected]) í síma 511 1225.

Auglýsing birt29. apríl 2026
Umsóknarfrestur11. maí 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Hamraborg 10, 200 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar