Íslensk fjárfesting
Íslensk fjárfesting
Íslensk fjárfesting

Gjaldkeri |Skrifstofuumsjón

Við leitum að öflugum og skipulögðum starfskrafti til að sinna gjaldkerastörfum, greiðslu reikninga, innheimtu, almennri skrifstofuumsjón og öðrum tilfallandi verkefnum. Starfið hentar einstaklingi sem vinnur vel sjálfstætt, er nákvæmur í vinnubrögðum, býr yfir sveigjanleika og hefur ríka þjónustulund.

Starfið er tímabundið til 15 mánaða með möguleika á áframhaldandi ráðningu.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Umsjón með greiðslu reikninga 
  • Innheimta og eftirfylgni með útistandandi kröfum 
  • Samskipti við viðskiptavini, birgja og samstarfsaðila vegna reikninga og greiðslna 
  • Skrifstofuumsjón og almenn umsýsla á skrifstofu 
  • Pantanir á aðföngum fyrir skrifstofu 
  • Umsjón með mötuneyti starfsfólks
  • Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla af bókhaldi, gjaldkerastörfum, innheimtu eða sambærilegum störfum
  • Góð tölvukunnátta og færni í notkun skrifstofu- og bókhaldskerfa 
  • Nákvæmni, skipulagshæfni og sjálfstæð vinnubrögð 
  • Góð samskiptafærni og þjónustulund 
  • Þekking á Microsoft umhverfi er kostur
  • Áreiðanleiki og frumkvæði
  • Jákvæðni og útsjónarsemi
  • Góð samskiptahæfni

Umsóknarfrestur er til og með 10. maí nk. 

Auglýsing birt30. apríl 2026
Umsóknarfrestur10. maí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Hagasmári 3, 201 Kópavogur
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar