Securitas
Securitas
Securitas

Launafulltrúi

Við leitum að metnaðarfullum og áhugasömum einstaklingi með reynslu í bókhaldi til að takast á við fjölbreytt verkefni á fjármálsviði Securitas. Viðkomandi mun vinna að verkefnum tengdum launavinnslu og gjaldkera. Við leggjum ríka áherslu á jákvætt hugarfar, sjálfstæð vinnubrögð og góðan liðsanda.

Helstu verkefni

  • Umsjón með launavinnslu og launaútreikningum
  • Afstemmingar og skil á launagögnum til opinbera aðila
  • Skráning og eftirfylgni með launatengdum gögnum í launakerfum
  • Túlkun og eftirfylgni kjarasamninga
  • Þjónusta við stjórnendur og starfsfólks vegna launa- og kjaramála
  • Þátttaka í þróun og umbótum á launaferlum og verkferlum
  • Umsjón og framkvæmd útgreiðslu reikninga
  • Dagleg stýring- og afstemmingar reikninga
  • Umsjón greiðsluáætlana
  • Önnur tilfallandi verkefni á fjármálasviði

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Býrð yfir menntun í viðskiptafræði eða bókhaldi, viðurkenndur bókari er kostur.
  • Reynsla af launavinnslu og þekking á kjarasamningum
  • Gott vald á íslensku er skilyrði.
  • Góð bókhaldsþekking og skilningur á fjárhagslegum gögnum, Þekking á launakerfinu H3 er kostur.
  • Góð þekking á Excel og hæfni til að greina upplýsingar og vinna úr gögnum
  • Jákvætt viðhorf, góð samskiptahæfni og þjónustulund

Í boði er fullt starf og er vinnutíminn frá kl. 08:00 – 16:00 virka daga. Starfið hentar öllum kynjum sem eru með hreint sakavottorð.

Við hvetjum umsækjendur til að skila inn umsóknum sem fyrst þar sem unnið verður úr þeim jafnóðum og þær berast. Farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál og er öllum umsóknum svarað.

Umsóknarfrestur er til og með 10. maí nk. Nánari upplýsingar um starfið veitir Ingunn Brynja Sigurjónsdóttir, deildarstjóri fjármálasviðs, í síma 580-7000.

Auglýsing birt30. apríl 2026
Umsóknarfrestur10. maí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Tunguháls 11, 110 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Almenn tæknikunnáttaPathCreated with Sketch.Fljót/ur að læraPathCreated with Sketch.Hreint sakavottorðPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.Skipulag
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar