

Sérfræðingur í innkaupum og útboðsgagnagerð
Vilt þú verða hluti af alþjóðlegu fyrirtæki og takast á við áhugaverð verkefni? Hefur þú áhuga á innkaupum á vörum og þjónustu fyrir opinbera- og einkaaðila? Langar þig að þróast í starfi innan fjölbreytts hóps sérfræðinga hérlendis og erlendis? Þá hvetjum við þig til að kynna þér starfið betur hér að neðan.
COWI á Íslandi leitar að sérfræðingi í innkaupum og í gerð útboðs- og verklýsinga fyrir verklega framkvæmdir á sviði samganga, veitna og mannvirkjagerðar. Á deildinni starfa um 20 einstaklingar sem fást við fjölbreytt verkefni sem snúa að verkefnastjórnun, innkaupum á vörum og þjónustu, hönnun samgöngumannvirkja og veitulagna, framkvæmdareftirliti, mælingar, gerð kostnaðaráætlana og útboðs- og verklýsinga.
Lykilþættir starfsins eru:
- Gerð verðfyrirspurna- og útboðsgagna vegna innkaupa á vörum og þjónustu.
- Gerð útboðsgagna fyrir verklegar framkvæmdir
- Kostnaðaráætlanir og kostnaðareftirlit
- Skjalaskráning og vistun gagna
- Þátttaka á verkfundum og ritun fundargerða
- Vinna samkvæmt innkaupaferlum COWI
- Opnun og yfirferð tilboða
- Samningagerð og rekstur samninga
Til að ná árangri í þessari stöðu teljum við að þú ættir að vera þjónustusinnaður, sveigjanlegur einstaklingur sem er frábær í að byggja upp sambönd, gefa gaum að smáatriðum og alltaf opinn fyrir nýjum áskorunum.
Að auki erum við að leitast eftir:
- Menntun sem nýtist í starfi s.s. verk-, tækni- eða iðnfræðimenntun eða önnur sambærileg menntun.
- Reynsla af gerð útboðsgagna vegna innkaupa og verklegra framkvæmda.
- Reynsla af innkaupum, gerð útboðsgagna, rekstri samninga og samningagerð er kostur
- Almenn tölvuþekking.
- Jákvætt viðhorf og frumkvæði í starfi.
- Góðir samskiptahæfileikar.
- Nákvæm og sjálfstæð vinnubrögð.
- Íslenskukunnátta í tali og rituðu máli.
- Þekkingu á stöðlum s.s. ÍST 30, ÍST 35, FIDIC, AACE kostnaðaráætlanir.
Við bjóðum líka uppá
- Sveigjanlegan vinnutíma og fjarvinnumöguleika samhliða vinnu á starfsstöð.
- Samgöngu- og líkamsræktarstyrki.
- Starfsmannafélag með fjölbreyttum viðburðum yfir árið.
- Viðbótargreiðslur í fæðingarorlofi.
- Starfsþróunarmöguleika innan COWI, starfsþróunaráætlanir og rafræna þjálfun hjá COWI Academy.
- Árlegt heilsufarsmat.
Enska
Íslenska










