
Sumarstarf Verkefnastjórnunarsvið
Vegna aukinna umsvifa leitar Stólpi að nýútskrifuðum einstaklingum eða nemum á lokaári á sviði tæknifræði, t.d. byggingafræði eða byggingatæknifræði eða sambærilegu tækninámi í sumarstarf með framtíðarmöguleikum.
Starfið felur í sér þátttöku í fjölbreyttum verkefnum í samvinnu við verkefnastjóra, m.a. við teikningar, gæðastjórnun og innkaup. Unnið er í nánu samstarfi við reynslumikið fagfólk í skipulögðu og faglegu vinnuumhverfi.
Lögð er áhersla á að nýr starfsmaður fái góða innsýn í daglegt starf félagsins og tækifæri til að byggja upp hagnýta reynslu samhliða námi eða að námi loknu.
Starfið felur í sér samskipti við viðskiptavini og samstarf við samhentan hóp vinnufélaga.
-
Umsjón teikninga, gæðastjórnun, eftirfylgni framkvæmda
-
Samskipti við viðskiptavini og samstarf við samhentan hóp
- Háskólanemi á sviði tæknifræða, t.d. byggingafræði eða byggingatæknifræði
- Gott skipulag og nákvæmni í vinnubrögðum.
- Hæfni til að vinna sjálfstætt og í teymi.
- Almenn tækniþekking og áhugi, nauðsynlegt.
- Lausnamiðað hugarfar
Íslenska
Enska










