VSB verkfræðistofa
VSB verkfræðistofa
VSB verkfræðistofa

Hönnuður lagna- og loftræsikerfa

VSB verkfræðistofa óskar eftir að ráða öflugan einstakling í starf hönnuðar lagna- og loftræsikerfa. Hönnuður lagna- og loftræsikerfa starfar á byggingarsviði VSB. Um framtíðarstarf er að ræða og í boði eru spennandi verkefni í frábæru starfsumhverfi.

Sviðsstjóri byggingarsviðs, Guðjón Magnússon ([email protected]) veitir frekari upplýsingar. Umsókn um starfið með upplýsingum um menntun, hæfni og starfsreynslu óskast skilað á Alfreð.is eigi síðar en 13. maí næstkomandi.

Fyllsta trúnaðar er gætt.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Hönnun lagna- og loftræsikerfa og gerð séruppdrátta auk annarra tilheyrandi verkefna við undirbúning og eftirfylgni framkvæmda
  • Gerð útboðsgagna, kostnaðaráætlana, skýrslna
  • Önnur almenn ráðgjöf og hönnun
  • Ábyrgð á gerð og gæðum hönnunargagna í samræmi við gæðakerfi og stefnu VSB
  • Samskipti við samstarfsaðila í hönnunarverkefnum
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Verk- eða tæknifræðimenntun
  • Starfsreynsla úr greininni
  • Iðnmenntun í tengdri starfsgrein er kostur (s.s. pípulögnum eða blikksmíði)
  • Sköpunargleði og lausnamiðuð hugsun
  • Góð samskipta- og samstarfshæfni
  • Góð kunnátta á Revit
Fríðindi í starfi

Sími og símreikningur greiddur af VSB

Sveigjanlegur vinnutími

Niðurgreiddur hádegismatur

Samgöngustyrkur

Íþróttastyrkur

Auglýsing birt27. apríl 2026
Umsóknarfrestur18. maí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Bæjarhraun 20, 220 Hafnarfjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar